Meirihluti Stúdentaráðs hefur samþykkt að seinka tillögu um vantraust á hendur rektors Háskóla Íslands um tvær vikur.
Ákvörðunin var tekin á fundi ráðsins í gær að frumkvæði fulltrúa Vöku, sem áður höfðu lagt fram vantrauststillögu vegna hækkunar skrásetningargjalda úr 75 þúsund krónum í 100 þúsund krónur. Fulltrúar Vöku segja frestinn gefa svigrúm til frekara samtals við rektor.
Blaðamaður ræddi við Andreu Eddu Guðlaugsdóttur (Vöku), Andra Má Tómasson (Röskvu), Ármann Leifsson (Röskvu) og Eirík Kúld Viktorsson (Vöku) um málið.








