Á þriðju hæð á Háskólatorgi leynist falin perla, þar sem Hundadagar eru haldnir alla miðvikudaga frá 12:40-13:10.
Viðburðurinn er skipulagður af Nemendaráðgjöf HÍ í samstarfi við Rauða krossinn. Markmiðið er að gefa nemendum tækifæri til að slaka á þegar mikið er að gera í náminu en rannsóknir hafa bent til þess að samvera með dýrum geti haft róandi áhrif og dregið úr streitu.
Að þessu sinni mætti Nuka, þriggja ára gömul Basset Hound, í heimsókn til nemenda. Hundurinn Tinna skiptist á við Nuku og mætir aðra hverja viku á vormisseri.







