Jafnréttisdagar Háskóla Íslands eru hafnir en þeir klárast þann tólfta febrúar. Dagskráin samanstendur af yfir þrjátíu viðburðum og fyrirlestrum bæði í Reykjavík, á Akureyri og á Hvanneyri.
Þeir eru haldnir í átjánda skiptið nú í ár en Freyja Þórisdóttir blaðamaður stúdentafrétta ræddi við Arnar Gíslason, jafnréttisfulltrúa Háskóla Íslands. Hann hefur komið að skipulagningu daganna frá upphafi.








