Háskóladansinn býður nemendum og áhugamönnum upp á swingdansa frá fjórða áratug síðustu aldar þar sem dansað er í pörum. Forseti háskóladansins, Catherine O´Hara, telur bestu leið fyrir nemendur á mismunandi námssviðum að kynnast sé í gegnum samkvæmisdans. Kennt er West Coast Swing, Country Swing og Lindy Hop, en einnig er boðið upp á K-pop dans.








