Það var líf og fjör á Stúdentakjallaranum í gærkvöldi þegar uppistandskeppnin Fyndnasti háskólaneminn fór fram. Keppnin er haldin á vegum Félagslífs- og menningarnefndar Stúdentaráðs Háskóla Íslands og er orðinn fastur liður í félagslífi stúdenta. Keppnin var góð upphitun fyrir árshátíð SHÍ sem haldin verður í Valsheimilinu á morgun.
Pjetur Már Hjaltason sigraði keppnina í ár og hreppti þar með titilinn „Fyndnasti háskólaneminn.“ Í dómnefnd keppninnar voru Egill Andrason, Inga Steinunn Henningsdóttir og Oddur Sigurðarson.






