Bílastæðamál Háskóla Íslands hafa verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarnar vikur og mánuði en síðastliðið haust var innleidd áskriftarleið sem sumir nemendur í háskólanum eiga erfitt með að sætta sig við. Hún er innheimt í gegnum símaforritið Parka og jafngildir eitt þúsund og fimm hundruð krónum á mánuði. Í samtali við blaðamann Stúdentafrétta segja nemendur frá því að þau eigi erfitt með að réttlæta það að borga mánaðarlega áskrift. Þá minnast sumir á að ástandið á stærsta bílastæði skólans, sem oft er kallað malarstæðið, fari versnandi og að víða hafi á því myndast djúpar holur.







