Heim Fréttir Þurfa erlendir nemendur að borga milljónir í skólagjöld? 

Þurfa erlendir nemendur að borga milljónir í skólagjöld? 

Upplýsingafundur fór fram 19. febrúar fyrir nemendur af erlendum uppruna. Þar kom meðal annars fram að samþykkja eigi í vor lagafrumvarp sem veitir opinberum háskólum á Íslandi heimild til að innheimta skólagjöld. Samkvæmt þeim upplýsingum sem liggja fyrir mun breytingin ekki hafa áhrif á skiptinema og aðra erlenda nemendur sem stunda nú þegar nám við HÍ. Óvissa ríkir hins vegar um hvernig fyrirhuguð lagasetning mun snerta þá sem hefja nám síðar.