Heim Fréttir Útvarp Sláandi nýjar tölur um ofbeldi gagnvart félagsráðgjöfum birtar – ættu nemendur að...

Sláandi nýjar tölur um ofbeldi gagnvart félagsráðgjöfum birtar – ættu nemendur að hafa áhyggjur?

Nýjar tölur voru birtar í sl. mánuði sem safnað hafði verið af siðanefnd félagsráðgjafa Íslands vorið 2025.
Nýjar tölur voru birtar í sl. mánuði sem safnað hafði verið af siðanefnd félagsráðgjafa Íslands vorið 2025.

Nýjustu tölur yfir félagsráðgjafa sem aldrei hafa orðið fyrir ofbeldi í starfi eru sláandi. Þetta segir í umfjöllun MBL um niðurstöður úr könnun sem siðanefnd félagsráðgjafa lét gera sumarið 2025 en hún var send á um 500 félagsráðgjafa. Um 6,6 prósent svarenda sögðust aldrei hafa orðið fyrir ofbeldi í starfi.

Blaðamaður Stúdentafrétta ræddi við Rúnar Smára Jensson en hann útskrifaðist úr félagsráðgjöf við Háskóla Íslands árið 2023 og hefur starfað á sviðinu síðan þá. Einnig var rætt við Agnesi Láru Þorleifsdóttur en hún er fyrsta árs nemi í félagsráðgjöf við háskólann og vinnur jafnframt í Klettaskóla en þar starfar fjöldinn allur af menntuðum félagsráðgjöfum.