Ingibjörg Bára Pálsdóttir, Lyfjafræði
– Já, en ég er ekki viss hvort ég fylgist gífurlega með því en smá.
Ivana Yordanova, Þroskaþjálfafræði
– Maður fer ekki framhjá því á tiktok þannig tæknilega séð já en ekki viljandi.
Guðný Helga Sæmundsen, Ferðamálafræði
– Já, ég ætla að fylgjast með þeim því ég er svo spennt og vongóð um að Kamala verði næsti forseti Bandaríkjanna.
Elvar Atli Guðmundsson, Landfræði
– Nei, ég ætla ekki að fylgjast með forsetakosningunum því ég þarf að mæta snemma í skólann á morgun.