Heim Spurning vikunnar Hlakkar þig til vetursins?

Hlakkar þig til vetursins?

Þorsteinn Þorvaldsson

Umhverfis og byggingaverkfræði

Já, ég hlakka til að fara í sund og dýfa mér í heita pottinn í kalda veðrinu. Ég verð líka tvítugur seint í desember og ég hlakka til að fara á rosalegt djamm um áramótin.

Tómas Ían Brendansson

Sagnfræði BA

Ég er spenntur fyrir sumu. Ég hlakka ekki til vetrar eða prófa hluta vetrarins en það er auðvitað spennandi að vera í nýjum skóla og að kynnast nýju fólki.

Kristbjörg Jóhanna Jónsdóttir

Spænska BA

Nei, það verður kalt, dimmt, snjór og skóli.

Ólafur Örn Þorsteinsson

Lífefna og sameindalíffræði BA

Ég er ekki viss. Þetta er blanda af örvæntingu fyrir prófin og spenningi fyrir því að fara að skíða.