Alls verða haldin 543 lokapróf við Háskóla Íslands nú á haustönn. Prófstjóri segir gervigreind eina stærstu áskorun háskóla þegar kemur að námsmati. Aðeins einn nemandi tekur lokapróf í setningafræði og er það því fámennasta lokaprófið en 330 nemendur eru skráðir í próf í stærðfræðigreiningu II sem er það fjölmennasta. Prófin skiptast í staðpróf, munnleg próf, heimapróf og próf í tölvuveri. Samkvæmt lokapróftöflu prófstjóra er þó enn óákveðið hvernig lokapróf í einum áfanga, Sovétsaga 2: Kalda stríðið og sósíalískt samfélag, fer fram.
Heimapróf orðin sjaldgæfari
Sigurður Ingi Árnason, prófstjóri Háskóla Íslands, segir í skriflegu svari til Stúdentafrétta að heimaprófum sem lokapróf hafi farið ört fækkandi síðustu ár. Á þessari önn séu aðeins 18 heimapróf í lokapróftöflu samanborið við 36 árið áður og 56 árið 2023. Af öllum lokaprófum eru heimapróf því ekki nema um 3% af heildarfjölda prófa. Þriðjungur heimaprófa fer fram á Félagsvísindasviði, 5 heimapróf fara fram á Hugvísindasviði, 3 fara fram á Heilbrigðisvísindasviði og 2 próf á bæði Menntavísindasviði og Verkfræði- og Náttúruvísindasviði.
Staðpróf að mestu rafræn
Í svari prófstjóra segir að örlítil fjölgun hafi orðið í rafrænum staðprófum, í ár séu 84% staðprófa rafræn en þau hafi verið um 80% undanfarin ár. Rafræn staðpróf nýta kerfið kerfi norska fyrirtækisins Inspera og forritið Safe Exam Browser sem getur tekið yfir tölvu nemanda og séð til þess að ekki sé hægt að nálgast önnur forrit í tölvunni. Nemendur nálgast prófin á undirsíðu Inspera á vef Háskóla Íslands og skrá sig inn með nemendanetfangi sínu.
Gervigreind mikil áskorun
Prófstjóri segir í svari sínu að gervigreind sé að hans mati ein stærsta áskorun sem háskólar standi frammi fyrir þegar komi að námsmati. Hann telur að það komi fram í aukinni þörf fyrir lokapróf undir eftirliti prófvarða, allavega fyrst um sinn. Hann segir að hugsanlega muni aukning í munnlegum prófum fylgja en sú aukning sé ekki enn sjáanleg.
Hann segir jafnframt að tilkoma gervigreindar muni hafa áhrif á það hvernig kennarar muni meta þekkingu nemenda og að fróðlegt verði að fylgjast með þróun í þeim málum til lengri tíma. Að mati prófstjóra munu hefðbundin lokapróf án hjálpargagna áfram verða ráðandi næstu ár en að eflaust muni einhverjir breyta námsmatinu á þá leið að gervigreind verði viðurkennt hjálpartæki og haga námsmati í samræmi við það.








