Heim Spurning vikunnar Hlakkar þú til vetrarins?

Hlakkar þú til vetrarins?

Þorsteinn Þorvaldsson, umhverfis- og byggingarverkfræði

Já, ég hlakka til að fara í sund og dýfa mér í heita pottinn í kalda veðrinu. Ég verð líka tvítugur seint í desember og ég hlakka til að fara á rosalegt djamm um áramótin.

Tómas Ían Brendanson, sagnfræði

Ég er spenntur fyrir sumu. Ég hlakka ekki til vetrar eða prófa hluta vetrarins en það er auðvitað spennandi að vera í nýjum skóla og að kynnast nýju fólki.

Kristbjörg Jóhanna Jónsdóttir, spænska

Nei, það verður kalt, dimmt, snjór og skóli.

Ólafur Örn Þorsteinsson, lífefna- og sameindalíffræði

Ég er ekki viss. Þetta er blanda af örvæntingu fyrir prófin og spenningi fyrir því að fara að skíða.