Heim Fréttir Slakað á yfir góðri mynd

Slakað á yfir góðri mynd

Dramamyndir virðast vera í mestu uppáhaldi hjá nemendum í Háskóla Íslands ef marka má bíósmekk nemenda sem blaðamaður Stúdentafrétta ræddi við. Blaðamaður fór á stúfana og ræddi við nokkra nemendur um kvikmyndaáhuga þeirra.

Silja Höllu Egilsdóttir, nemandi í stjórnmálafræði, velur helst myndir sem vekja upp tilfinningar og þar sem hún nær að lifa sig inn í aðstæður karaktera. Hún segir að óskarsverðlaunamyndin Everything Everywhere All at Once vera mjög góð. Þrátt fyrir að dramamyndir séu í miklu uppáhaldi þá segir hún gamanmyndir vera ofarlega á áhorfslistanum sínum.

„Og gamanmyndir, það er stundum gott þegar maður er í fullu námi að geta róað sig og slakað á og haft bara gaman,” segir Silja.

Sjúkraþjálfunarnemarnir Freyja Friðþjófsdóttir og Tinna Katrin Owen segja að vísindaskáldskapur og drama vera í miklu uppáhaldi. Freyja tekur þó fram að hún horfi á alls konar myndir, mikið af gríni en alls ekki hryllingsmyndir.

„Ég bara fíla þær ekki, ég verð svo hrædd og þá get ég ekki farið að sofa,” segir Freyja.

Uppáhalds myndir Freyju eru meðal annars Wall-E, A Silent Voice og Gladiator. Þær bæta einnig við að tónlist skipti miklu máli í þeim myndum sem þær horfa á.

Unnur Maren Þiðriksdóttir, sem er líka í stjórnmálafræði eins og Silja, segist ekki vera mikið fyrir hrylling en að hún geti gert það ef hún er neydd til þess. Hún segir að 90% af myndunum sem hún horfir á séu gamanmyndir. Henni finnst miklu meira gaman að horfa á afþreyingu sem lætur hana hlæja heldur en að verða sorgmædda eða hrædda. Hún segir að uppáhalds myndirnar hennar séu Pitch Perfect, Grease og Mamma Mia.

Klassískar og spennumyndir í uppáhaldi

Margrét Helga Kristjánsdóttir, meistaranemi í líf- og læknavísindum, segir að hún horfi eiginlega á allt en heldur mest upp á eldri myndir frá fyrri áratugum. Hún segir að hún horfi ekki mikið á myndir eftir árið tvö þúsund. Með þessum klassísku myndum nefnir hún Legends of the Fall, Shawshank Redemption, La Vita è Bella og Pulp Fiction.

Háskólanemum finnst líka gott að gleyma sér og horfa á skemmtilegar myndir. Þórunn Valdís Þórsdóttir meistaranemi í þjóðfræði hefur mikið gaman af fantasíum, vísindaskáldskap og rómantískum gamanmyndum.

„Það er gaman að skoða þessa heima sem eru að mótast og hvernig umhverfið er búið til í myndunum, þú veist þá hvað er líkt og ólíkt með okkar heimi,” segir Þórunn.

Hún segir síðan með rómantísku gamanmyndirnar að það sé stundum bara gaman að horfa á afþreyingu og þurfa ekki að hugsa of mikið. Hún segir að hún horfi á The Holiday, sem hefð, á hverju einasta ári um jólin.

Viktor Logi Bernharðsson, nemandi í bókmenntafræði, var sammála Þórunni um að stundum væri gaman að geta gleymt sér í ákveðnum myndum. Hins vegar er smekkurinn hans mjög fjölbreyttur, þar sem hann dýrkar að horfa á spennumyndir, dramamyndir og hryllingsmyndir.

„Spenna er svona eitthvað „kósý“ sem maður getur sett í gang,” segir Viktor.

Uppáhalds hryllingsmyndin hjá Viktori er The Thing.

Í lok dags er staðreyndin sú að við viljum gleyma stað og stund og horfa á góða kvikmynd.