Bjargey Axelsdóttir er nemandi í stjórnmálafræði en nú stödd í Beijing í Kína. Hún valdi að fara til Kína í skiptinám vegna þess að hana langaði að prófa eitthvað alveg nýtt sem ekki margir hefðu gert í kringum hana. Það hefur samt ekki allt gengið eins og í sögu.

Bjargey er 21 árs og er nemendi við Háskóla Íslands. Hún hefur ferðast mikið um heiminn og valdi þess vegna að fara á stað sem hún hafði ekki skoðað mikið síðan hún var lítil. Hún komst inn í Peking University, sem hún segir vera Harvard Kína. Hún verður í Kína í hálft ár. Þegar hún kemur heim heldur hún áfram námi í stjórnmálafræði.
Ekki eins og í sögu
Bjargey segir að þegar hún kom fyrst hafi allt verið í rugli. Hún vissi ekki fyrr en hún var mætt að þeir áfangar sem hún hafið valið fyrir skiptinámið væru allir kenndir á kínversku. Hún komst síðan að því að aðeins 50 áfangar í öllum skólanum væru kenndir á ensku, þar af bara fjórir í stjórnmálafræði. Það var mikið bras að fá hjálp fyrstu dagana þar sem fáir tala ensku og ef þeir gera það er það frekar lítil enska. Það var ekki fyrr en hún flutti inn á heimavistina og kynntist þar herbergisfélaga sínum sem gat hjálpað henni með áfangaval. Þetta var mikill léttir, segir Bjargey, þar sem hún var nálægt því að gefast upp og fara bara heim.
Allt svo ódýrt
Það sem Bjargey finnst best við að búa í Kína er hvað allt er ódýrt. ,,Það sé ótrúlega mikið frelsi að þurfa ekki að pæla í peningum eins og svo oft heima“. Hún fékk fullan styrk fyrir skiptináminu svo hún borgar enga leigu á herberginu, sem gefur henni ennþá meira frelsi. Hún getur farið og gert allt sem hún vill án þess að veskið taki högg. Hún segir reyndar að hún eigi eftir að sjá og gera margt sem túristar gera vanalega í Kína, en sé mjög spennt fyrir því. Hún segir líka mikinn létti að hafa eignast vini sem búi líka á háskólasvæðinu.

Hér ein af mörgum máltíðum sem Bjargey hefur prófað. Þessi máltíð kostaði 300kr
Tímamismunur erfiður
Bjargey segir að það sem sé erfiðast sé oftast tímamismunurinn, en það er átta klukkutíma munur. ,,Það er erfitt að geta ekki talað við vini mína og fjölskyldu heima nema á óhentugum tímum“ segir Bjargey. Þegar vinir eru búnir í vinnu eða skóla er hún að fara að sofa. Hún segir líka að það sé erfitt að eiga vini úti sem tala enga íslensku. Hún á vini sem koma frá Ástralíu og tala bara ensku. ,,stundum finnist mér ég ekki fyndin á ensku eins og á íslensku“ segir hún. Hún segir líka að það hafi verið erfitt að aðlagast borginni þar sem hún sé svo gríðarlega stór. Hún segir samt að um leið og hún hafi fundið út úr hlutunum hafi allt orðið mun auðveldara. Það tók bara sinn tíma og orku.








