Heim Fréttir Flest nemendafélög skortir aðstöðu

Flest nemendafélög skortir aðstöðu

Nemendur Háskóla Íslands hafa aðstöðu til þess að vinna víða í skólanum en mörg nemendafélög vantar aðstöðu.

Vannýtt rými innan Háskóla Íslands hafa verið til umræðu innan stúdentaráðs. Nýsamþykkt tillaga ráðsins, sem send hefur verið á skrifstofu SHÍ, vill reyna að breyta þessu og ýta undir að ónotuðum rýmum innan háskólans verði breytt í fundaraðstöðu nemenda. Með þessu myndi það hjálpa nemendafélögum að halda viðburði svo stúdentar geti hist og skapað tengsl. Að hafa félagsleg tengsl er stór þáttur hjá nemendum í háskólanum. Mörg nemendafélög hafa hvorki fastan samkomustað né fundarstað fyrir meðlimi sína.

Langflestir án aðstöðu

Anna María Allawawi Sonde, ritari og varastúdentaráðsliði í Vöku, setti fram tillöguna. Það er meginábyrgð starfsfólks skrifstofu SHÍ að framfylgja samþykktum tillögum stúdentaráðs. Hún bendir á að staða nemendafélaganna sé misjöfn, á meðan stærri nemendafélögin eins og Orator og Anima, sem eru vel sett af rýmum, hafi mörg félög á hugvísinda- og menntavísindasviði enga aðstöðu. Hún bætir því einnig við að hún sé sjálf í stjórn Orator sem hefur fimm herbergi til að velja úr. Anna segir að það sé stór partur af virkni og félagslífi að hafa nóg af plássi.

Anna setti fram þessa tillögu því þegar hún var í tímum í Háskólabíói tók hún eftir því að kjallararýmið var ónotað. Henni fannst að hægt væri að breyta þessu á þann hátt að nýta rýmið betur. Hún segir líka að það leynist fleiri vannýtt pláss innan háskólasvæðisins.

Anna segir að hvað varðar sterk félagsleg tengsl þá séu þau grundvöllurinn að því að eiga góða háskólaupplifun. Einnig er það mikill hvati þegar þig langar að mæta í skólann og vera með vinum þínum.

Varðandi framkvæmdina á þessu og hvernig rýmunum verður úthlutað til félaganna segir Anna: „Það væri bara sett upp aðstaða, það væri annaðhvort gert einhvers konar skráningarskjal þannig að nemendafélög gætu skráð sig og þá beðið um að fá einhver rými til þess að nota.“

Með þessu myndu nemendafélög sem skortir rými fá aðgang að lokuðum fundarherbergjum utan opnunartíma skólans, svo það er hægt að funda þegar nemendur hafa tíma til þess að mæta.

Kjallarahæðin í Háskólabíói sem Anna talar um í tillögunni.

Að veita fleiri nemendafélögum aðgang

Þorleifur Hallbjörn Ingólfsson, skemmtanastjóri Politicu, nemendafélags stjórnmálafræði, segir að skortur á rými fyrir sitt nemendafélag sé mjög óhentugt.

Hann segir að það séu töluvert minni nemendafélög sem eigi rými. Það mætti bæta það með því að veita fleiri nemendafélögum aðgang að ákveðnum rýmum. Þorleifur segir að það væri hægt að nota pláss í Háskólabíói og Sögu. Þorleifur segir að þegar þau þurfi að funda þá bóki nemendafélagið í Politica fundarherbergi í Gimli 207.

„Það er til fullt af svæðum þar sem hægt er að nota, það þarf ekki að vera heil höll, en bara ef við erum með kompu til þess að geta hent dótinu sínu í, það breytir öllu,” segir Þorleifur.

Þórunn Magnea Ragnarsdóttir, forseti Animu, nemendafélags í sálfræði, segir að það sé frábært að þau séu með aðstöðu fyrir sitt nemendafélag. Hún segir að þetta hjálpi þeim mjög mikið því þau haldi fundi vikulega þar sem öll stjórnin kemur saman. Hún bætir því við að þau noti líka rýmið til þess að læra.

Þórunn segir að sér finnist náttúrulegt að öll nemendafélög ættu að hafa rými og það myndi vera best fyrir alla ef það væri þannig. Hún segir samt að það fari líka eftir því hversu stórt rýmið er og hversu stóra stjórn nemendafélagið hefur. Hún nefnir að Mágus, félag viðskiptafræðinema, sé með mun minna rými en þau.

„Mér finnst í raun að það ætti allavega að finna einhverja lausn á þessu þannig að þetta auðveldi lífið hjá þessum sem eru í stjórn því að þau sjá um félagslífið fyrir alla nemendur og eru að taka sér ógreitt starf í rauninni og mér finnst það bara mjög mikilvægt að hafa gott félagslíf,” segir Þórunn.

Aðstaða hjá Orator (Félag lögfræðinema), Soffíu (Félag heimspekinema) og Animu (Félag sálfræðinema).