Eina áhugaverða nótt undir berum himni í Ölpunum fyrir nærri fjórum áratugum breytist lífsstefna Snævarrs Guðmundssonar. Þá var hann 25 ára gamall dúkari með fjölskyldu. Í dag á hann sinn eigin sjónauka úti í garði til að framkvæma stjörnumælingar.
Upphafið má rekja til 12. ágúst 1988 þegar Snævarr var á ferðalagi í Ölpunum. Þar lenti hann í því að fá ekki aðgang að skála og þurfti að gista utandyra.
„Þegar það dimmdi að þá fóru stjörnurnar að koma og svo varð himinninn svo yfirþyrmandi að ég varð alveg hugfanginn. Þetta gjörbreytti mér,“ segir Snævarr.
Ákvörðunin eftir tíu ár
Þrátt fyrir að áhuginn hafi kviknað um stjörnur þessa nótt tók það Snævarr tíu ár að taka ákvörðunina um að fara í akademíuna. Á þessum tíma starfaði hann sem dúkari og var að sinna fjölskyldulífinu sínu. Snævarr fann samt að hugurinn leitaði annað.
„Þótt þú fáir áhuga á einhverju ætlarðu ekkert endilega að fara þangað strax, því þú þarft að sjá fyrir þér. Svo ber lífið þig eitthvað áfram og þú ert kominn á annað sjónarhorn eftir tíu ár,“ útskýrir hann. „Þú horfir til baka og segir: Ég er ekki sáttur við mína vinnu, mig langar að fara í háskóla. Þá bara tekurðu ákvörðun.“
Fyrir Snævarri snýst stjörnufræði um að skilja ferlana í náttúrunni og hvernig vísindin þróast skref fyrir skref. Snævarr bendir á að vísindamenn byggi oftast á verkum annarra og á ákveðnum tímapunkti vildi hann gera það sjálfur.
„Þegar ég var bara að skoða stjörnur upplifði ég mig alltaf sem þiggjanda. Það var gaman, en allt sem heillaði mig var bara þekking sem aðrir höfðu sótt,“ segir Snævarr. „Mig langaði að prufa þetta sjálfur og upplifa það frá þeim sjónarhóli að hafa gert eitthvað sjálfur, ekki bara vera þiggjandi.“
Þriggja ára þolinmæðisverk
Í rannsóknum hjá Snævarri hefur hann lagt áherslu á hversu langt hann getur farið með sinn eigin búnað. Hann nefnir samræðu sem hann átti við Þorstein Sæmundsson stjörnufræðing um hvers vegna flókið þetta getur verið að mæla sólstjörnur.
„Botnlínan er sú að mig langar að vita hversu langt ég get gengið með mínum tækjum. Flestir kaupa sér kíki og þá er það bara augnhjálp, en ég vildi vita hvaða kraftur býr í þessu,“ segir hann.
Þegar hann reyndi að mæla slíkar stjörnur sjálfur kom í ljós hversu mikla þolinmæði það tekur.
„Þetta tók þrjú ár og fólk gerir sér enga grein fyrir því hvað þetta krefst mikils tíma. Ég fór ekki á einhverja mælingastöð úti í Ameríku til þess að gera þetta. Ég gerði þetta úti í garði og man eftir hverju einasta skipti hvað það var mikill vindur,“ segir Snævarr.

Á mánudaginn 16. nóvember var hann með kynningu um ljósmælingar myrkvatvístirna þar sem hann talar um reynsluna sína af stjörnustöðinni í Nesjum. Hér er linkur á síðuna hans þar sem fjallað er um stjörnuathuganir og stjarnmælingar.








