Heim Fréttir Drekabanar sameinast í Háskóla Íslands

Drekabanar sameinast í Háskóla Íslands

borðspil

Félagslífið er stór hluti af háskólanámi, og nemendur leita ýmissa leiða til að tengjast jafningjum sínum. En hvað ef maður kemur frá stað sem er marga þúsund kílómetra í burtu, þekkir engan og talar ekki tungumálið? Benjamin Baroun, nemandi í matvælafræði, langaði að tengjast fólki eftir að hann flutti til Íslands og ákvað því að stofna leikjaklúbb.

Benjamin ákvað að koma til Íslands þegar hann fann fyrir vilja til að komast frá Bandaríkjunum. Þegar hann hóf nám við Háskóla Íslands þurftu bandarískir nemendur ekki að greiða skólagjöld og hann heillaðist af rólegheitunum sem eyjan býður upp á. „Ísland er þægileg, róleg lítil eyja sem heillaði mig,“ sagði Benjamin (þýðing blaðamanns) þegar hann skoðaði möguleg lönd í Evrópu.

Hann stofnaði Leikjaklúbb Háskóla Íslands í ágúst 2024, skömmu eftir komuna til landsins. „Þetta virtist vera góð leið til að fá mig og aðra til að kynnast,“ segir Benjamin (þýðing blaðamanns). Hann hafði rekið lítinn Dungeons and Dragons-klúbb í fyrri skóla sínum í Bandaríkjunum og fann að það var góð leið til að tengjast fólki. Í fyrri klúbbnum voru aðeins um átta manns, en þessi klúbbur er mun stærri: um 300 manns fylgjast með honum á Discord og um 30 þeirra mæta á viðburði.

Ævintýri í Lögberg

Klúbburinn hittist á mánudagskvöldum í Lögbergi á háskólasvæðinu frá klukkan fimm til átta til að spila saman. Þau spila fjölbreytta leiki, en eru mest í borðspilum og eru með nokkrar herferðir í gangi í Dungeons and Dragons. Klúbburinn hefur á þessum tíma ekki tök á að fjárfesta í tölvum til að geta spilað tölvuleiki saman. Auk þess heldur klúbburinn mánaðarlega viðburði, eins og hrekkjavökuveislu í október, og í þessum mánuði fóru þau í minigolf.

Svo virðist sem Benjamin hafi stofnað stað fyrir sjálfan sig og aðra til að tengjast og byggja upp góða vináttu. Klúbburinn leitast ætíð eftir fleiri áhugasömum nemendum til að spila með sér og eignast ævilanga vini.