Íslendingar eyða ekki meiri peningum um jólin, heldur eyða þeim fyrr. Þetta kom fram á málþinginu Samtal við atvinnulífið á vegum Maestro, félag viðskipta- og hagfræðinema í Háskóla Íslands. Á málþinginu var rýnt í stærstu afsláttardaga ársins, hvað gerist hjá fyrirtækjum, hvað ræður kaupákvörðunum fólks og hvernig dagarnir hafa áhrif á íslensk heimili.
Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka, flutti kynninguna „Byrja jólin í nóvember? Afsláttardagar, kauphegðun og staða íslenskra heimila“ um breytta neysluhegðun fólks. Niðurstaðan benti til þess að neyslan væri að færast framar í tímann. Kortavelta í nóvember 2025 jókst um 10,7% frá sama mánuði árið áður.
Desember enn á toppnum
Íslensk heimili eyddu 1.424 milljörðum króna á ári með greiðslukortum. Desember hefur verið stærsti eyðslumánuðurinn í 15 af seinustu 16 árum. Fyrstu fjórir mánuðir ársins eru hins vegar undir meðaltali, sérstaklega janúar og febrúar.
Afslættir ýta undir skyndikaup
Bergþóra bendir á að afslættir geti verið sparnaður ef kaupin eru skipulögð fyrirfram. Einnig geta þeir ýtt undir skyndikaup. Þrátt fyrir að sparnaður á heimilum hafi aukist sé fólk almennt ekki að spara á afsláttardögum.
Afsláttardagar hafa þau áhrif að verðbólga lækkar tímabundið, í um einn mánuð. Samkvæmt verðbólguspá Íslandsbanka fyrir nóvember hafa flugfargjöld mest áhrif til lækkunar neysluverðs (-0,34). Þar á eftir koma föt og skór (-0,10), húsgögn (-0,08) og farartæki (-0,04). Reiknuð húsaleiga (+0,08) og bensín (+0,04) hækka á móti.
Bergþóra segir að heimili séu að spara og standi almennt vel, en þegar verðbólgan minnki í nóvember þá aukist neysluhyggjan.
Við kaupum fyrir stöðu
Nína María Saviolidis, doktor í viðskiptafræði, fjallaði um afsláttardagana frá samfélagslegu sjónarhorni. Hún benti á að neysla snúist ekki einungis um virkni vöru heldur geti kaup vöru einnig verið leið til þess að sýna félagslega stöðu. Í dag fari auglýsingar að mestu fram á samfélagsmiðlum, þar sem fólk sýnir oft óraunhæfa hlið af lífi sínu. Þar getur fjárhagsleg staða verið merki um velgengni.
Nína nefndi fimm helstu ástæður neyslu: til að mæta grunnþörfum, uppfylla félagsleg hlutverk og persónulegar langanir, vegna áhrifa markaðssetningar og vegna þess að fólk hefur ekkert val. Hópþrýstingur getur einnig haft mikil áhrif á kauphegðun fólks.








