Heim Fréttir Stór tímamót hjá prófessor Ingólfi V. Gíslasyni

Stór tímamót hjá prófessor Ingólfi V. Gíslasyni

Ingólfur Vilhjálmur Gíslason hélt nýlega upp á sjötugsafmælið sitt og er því að hætta störfum sökum aldurs. Nú verður hann emeritus við Háskóla Íslands. Ingólfur er prófessor innan félags-, mann- og þjóðfræðideildar Háskóla Íslands. Hann hefur starfað innan háskólans í um það bil 18 ár og er því reynslumikill bæði sem kennari og rannsakandi. Ingólfur hefur haft fókusinn á jafnréttis- og kynjamálefnum og hefur meðal annars skrifað bókaflokkinn Ofbeldi í nánum samböndum – Orsakir, afleiðingar, úrræði og voru bækurnar fimm talsins, hver um sig ætluð ákveðnum faghópi.

Ingólfur V. Gíslason, prófessor í félags-, mann- og þjóðfræðideild

Lengi vel eini karlinn að vinna að jafnréttismálum

Ingólfur fékk doktorsgráðu sína frá Háskólanum í Lundi árið 1990 og árið 1993 hóf hann störf hjá stofu sem þá hét Skrifstofa jafnréttismála en er nú Jafnréttisstofan. Lengi vel var Ingólfur einn fárra karla að vinna að slíkum málum og var því tekinn inn í alls konar nefndir og bæði alþjóðlegt og norrænt samstarf.

„Það gerði það að verkum að ég sankaði að mér mikilli þekkingu á þessu sviði og vildi mjög gjarnan rannsaka þessa hluti,“ segir Ingólfur vera ástæðuna fyrir áhuga sínum á kynjamálefnum.

Ingólfur var byrjaður að leggja fram rannsóknir og greinar á meðan hann starfaði hjá Jafnréttisstofu, en árið 2008 var hann ráðinn til Háskóla Íslands þar sem hann bæði kenndi og vann að rannsóknum, honum til mikillar ánægju. Hann byrjaði sem stundakennari og kenndi þá klassískar kenningar en svo fékk hann það verkefni að kenna námskeið að nafni Karlar og karlmennska. Síðan þá hefur hann kennt ýmsa áfanga sem flestir snúa að stöðu og jafnrétti kynjanna meðal annars félagssálfræði og líkaminn og kynverundin.

Lagði mikið fram í breytingu laga um fæðingarorlof árið 2000

Þegar Ingólfur vann hjá Jafnréttisstofu var hann í nefnd sem var þar starfandi og hét Karlanefnd jafnréttisráðs. Hún setti fram mjög róttækar tillögur um hvernig ætti að breyta lögum um fæðingarorlof, meðal annars þannig að þau gerðu feðrum kleift að nýta hluta orlofsins. Þegar lögin voru samþykkt árið 2000 voru þau nánast alveg eins og nefndin hafði lagt til. Ingólfur tók því stóran þátt í breytingu laganna og hafði unnið mikið að því að flytja erindi og skrifa greinar í þeim tilgangi að koma hugmyndum nefndarinnar á framfæri.

Partur af jákvæðum straumi 

Ingólfur segir að tvennt hafi aðallega staðið upp úr á hans vinnuferil, annars vegar þátttaka hans í breytingum á lögum um fæðingarorlof og hins vegar það sem hann lagði af mörkum til að draga úr ofbeldi gegn konum.

„Ég er nokkuð viss um að ef ekki hefði verið fyrir skrif mín, fyrirlestra og kannski ýtni og frekju, þá hefði þetta meðferðarúrræði sem er núna í boði fyrir karla sem beita ofbeldi í nánum samböndum ekki komist á laggirnar, eða allavega hefði það orðið miklu seinna heldur en það varð,“ segir Ingólfur.

Það sem Ingólfi þótti áhugaverðast og skemmtilegast í starfi sínu við Háskóla Íslands voru rannsóknirnar, en þó hefur það verið misjafnt eftir bæði rannsóknum og kúrsum.

Á eftir að sakna nemenda og starfsfólks

Ingólfur segir að það hafi verið gríðarlega gaman að kynnast starfsfólki og nemendum og þess muni hann koma til með að sakna mest við starf sitt innan Háskóla Íslands. Hann segir að það hafi verið sérstaklega gaman að kenna nemendum og fylgjast með framförum þeirra í gegnum annirnar en einnig hafi verið skemmtilegt að hjálpa þeim í gegnum lokaritgerðir og annað slíkt.

„Það var virkilega gaman alltaf á haustin, þegar maður var að kenna eitthvað námskeið, að sjá svona spenning í þeim sem voru þarna komnir,“ segir Ingólfur og bætir við að það hafi einnig verið áhugavert að fylgjast með því hvernig tískan hafi breyst meðal nemenda í gegnum ár sín sem kennari. 

„Félagssálfræði hefur alltaf verið frekar vinsælt námskeið og eitt af tveimur námskeiðum þar sem nemendur hafa sagt við mig einhverjum árum eftir kennsluna að það hafi breytt lífi þeirra og það er mjög ánægjulegt að heyra,“ segir Ingólfur brosandi.

Hann er þó feginn við að losna undan þeim skuldbindingum að gefa einkunnir.

„Það er virkilega erfitt og hefur orðið erfiðara og erfiðara með árunum þannig að ég var nú eiginlega farinn að láta aðstoðarkennara algjörlega sjá um það,“ lýsir Ingólfur. 

Emeritus og ferð til Japan

Ingólfur verður emiritus eftir starfslok sín. Hann heldur því áfram tengslum sínum við háskólann og mun dunda sér við ókláraðar greinar og rannsóknir í aðstöðu innan skólans. Hann veit þó ekki hvað kemur til með að gerast þegar hann er ekki lengur skyldugur til að skila af sér niðurstöðum rannsókna sinna. 

„Maður er alltaf með eitthvað í skúffunum sem er hálfklárað eða rétt byrjaður á, ég ætla að reyna að klára eitthvað af því,“ lýsir Ingólfur en segist einnig vera sáttur við að enginn skilafrestur sé lengur á verkefnum hans en „það getur náttúrulega líka leitt til þess að maður geri ekki nokkurn skapaðan hlut,“ bætir hann við. 

„En maður verður líka að horfa til þess að vera orðinn sjötugur og það er óvíst hversu lengi maður heldur kollinum svona sæmilegum,“ bætir Ingólfur við þegar rætt er um komandi rannsóknarvinnu.

Einnig ætlar Ingólfur sér að ferðast ásamt konu sinni og eru þau á leið til Japan í byrjun næsta árs.

„Okkur hefur lengi langað til þess að fara til Japans og við ákváðum að við þyrftum að gera eitthvað af stærri gerðinni til þess að átta okkur á því að við værum bæði orðin, eins og kunningi minn kallar það, vinnufrjáls.“