Heim Fréttir Konurnar á bakvið myndavélina

Konurnar á bakvið myndavélina

Í tilefni nýlegrar útgáfu á bókinni Striving for Independence: Nordic Women Studio Photographers, 1860–1920 var kallað til málþings síðast liðinn fimmtudag á Þjóðminjasafni Íslands. Málþingið sem fer undir nafninu Frumkvöðlar í norrænni ljósmyndun en þar fjalla þær Sigrún Alba Sigurðardóttir, lektor í menningarfræðum við Listaháskóla Íslands og rithöfundur, Æsa Sigurjónsdóttir, prófessor í listfræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og Inga Lára Baldvinsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður Ljósmyndasafns Íslands hjá Þjóðminjasafni Íslands um íslenskar konur sem ráku eigin ljósmyndastofur á síðari hluta 19. aldar og í byrjun þeirrar 20. Allar þrjár skrifuðu greinar í um þessar konur í bókinni.

Bókin er afrakstur norræns rannsóknarsamstarfs sem hefur staðið í nokkur ár. Ritstjórar hennar eru Mette Sandbye, prófessor við Kaupmannahafnarháskóla og Sigrid Lien, prófessor í Bergen. „Það er búið að gefa út nokkrar bækur, til dæmis í Bretlandi, Frakklandi og á Ítalíu, um konur í ljósmyndun á þessu tímabili. En það vantaði norrænu ljósmyndarana,“ segir Sigrún Alba, einn höfunda bókarinnar.

Striving for Independence: Nordic Women Studio Photographers, 1860-1920

Ljósmyndun sem valdatæki

Á síðari hluta 19. aldar var ljósmyndun ein fárra atvinnugreina sem konur gátu nýtt sér til valdeflingar og til að hafa rödd í samfélaginu. Margar konur nýttu þetta tækifæri, allt frá stórborgum Evrópu til Akureyrar og Djúpavogs.

Sigrún Alba segir að ljósmyndun hafi allt frá upphafi verið markaðssett sem tækni við hæfi kvenna. Þegar hún kom fram í kringum 1839 var hún jafnvel kynnt sem svo einföld tækni að konur gætu tileinkað sér hana. „En þær tóku þetta til sín og notuðu sem valdatæki til að komast inn í atvinnulífið,“ segir hún.

Völdin fólust ekki aðeins í sjálfstæðum rekstri. „Það felast ákveðin völd í því að vera á bak við myndavélina og ráða hvernig fólk er myndað, hvernig aðrar konur eru myndaðar og hvaða mynd er dregin upp af stöðum. Það var ótrúlega mikilvægt að það væru ekki bara karlar sem tækju myndir.“

Á myndum kvennanna sjást oft konur sem reykja, hjóla eða róa. Það er frjálslegri mynd en sú sem við gerum okkur yfirleitt af konum 19. aldar. „Þetta voru oft konur sem voru alveg til í að ögra römmum samfélagsins,“ segir Sigrún Alba.

Mynd eftir Bolette Berg

Á Íslandi voru konur um 17–18 prósent ljósmyndara á síðari hluta 19. aldar. Átta íslenskar konur lærðu ljósmyndun á öldinni og allar ráku þær eigin stofu um tíma. Í Kaupmannahöfn var hlutfall kvenna um 30 prósent á sama tíma og árið 1901 voru næstum því jafnmargar konur og karlar starfandi ljósmyndarar í borginni.

Nicoline Weywadt var frumkvöðullinn. Hún hóf störf sem ljósmyndari árið 1872 og rak eigin ljósmyndastofu á Djúpavogi frá 1881 til 1900. Anna Schiöth flutti til Íslands árið 1868, þá 22 ára og bjó hér til dauðadags 1921. Hún rak ljósmyndastofu á Akureyri ásamt eiginmanni sínum, Henrik Schiöth, frá 1878 til 1899, en tók smám saman yfir reksturinn. Árið 1880 varð hún fyrst allra til að sýna ljósmyndir á sýningu á Íslandi.

Mynd eftir Nicoline Weywadt
Mynd eftir Önnu Schiöth

Engel Jensen var aðeins 18 ára þegar hún var send til Kaupmannahafnar eftir að hafa slitið trúlofun á Akureyri. Engel lærði hjá Peter Elfelt, sem var einnig fyrsti kvikmyndagerðarmaður Dana, en Engel lærði auk þess heilsunudd. Hún opnaði ljósmyndastofu á Akureyri tvítug árið 1897 en flutti til Edinborgar átta árum síðar og sneri ekki aftur. En Sigrún veltir því fyrir sé hvort Ísland hafi einfaldlega verið of lítið fyrir hana.

Þrátt fyrir erlendu nöfnin voru bæði Nicoline og Engel fæddar á Íslandi og áttu íslenskar mæður.

Mynd af Engel Jensen, tekin af kennara hennar Peter Elfelt

Sjálfstæði og óhefðbundin heimili

Engin kona rak ljósmyndastofu í Reykjavík fyrr en Sigríður Zoëga kom til sögunnar í byrjun 20. aldar. Hún lærði í Kaupmannahöfn og Þýskalandi, meðal annars hjá hinum þekkta ljósmyndara August Sander. Hún rak ljósmyndastofu í Reykjavík ásamt Steinunni Thorsteinsson frá 1915 til 1967.

Fram til ársins 1900, hér á landi og á Norðurlöndunum, máttu konur ekki eiga sín eigin fyrirtæki ef þær voru giftar. Að sögn Sigrúnar Ölbu voru því margar ljósmyndaranna ógiftar og í stórborgunum bjuggu sumar saman og ráku bæði heimili og ljósmyndastofu og dæmi eru um að þær hafi alið upp börn saman. Í bókinni er sérstakur kafli tileinkaður kvenljósmyndurum og hinseginleika.

Mynd eftir Sigríði Zoëga

Sigrún segir það mikilvægt að gleyma ekki þessum frumkvöðlum og brautryðjendum sem þessar konur voru. Nicoline Weywadt og Anna Schiöth voru vel þekktar á sínum tíma og orðspor þeirra hefur lifað „en svo eru einnig aðrar sem hafa fallið í gleymsku,“ segir Sigrún.

Bókina er ekki hægt að fá í verslunum hérlendis en hægt er að panta hana á netinu hjá útgefanda.

Myndir: Þjóðminjasafn Íslands