Geðveikir dagar standa nú yfir í Háskóla Íslands, 2.–5. febrúar, þar sem áhersla er lögð á geðheilbrigði og vellíðan nemenda. Dagarnir eru árlegur viðburður og samstarfsverkefni Nemendaráðgjafar og Stúdentaráðs.
Blaðamaður ræddi við Valgerði Laufey Guðmundsdóttur, hagsmunafulltrúa Stúdentaráðs, og Öldu Maríu Þórðardóttur, framkvæmdastjóra Stúdentaráðs. Þær eru meðal skipuleggjenda Geðveikra daga.
Markmið Geðveikra daga er að efla umræðu um geðheilbrigðismál innan skólans og kynna þau úrræði sem stúdentum standa til boða. Skipuleggjendur segja að viðbrögð hafi verið mjög góð og að mæting hafi verið fín á fyrstu viðburði vikunnar.
Dagskrá Geðveikra daga má finna á vef Háskóla Íslands.








