Heim Spurning vikunnar Hvernig hefur önnin gengið hingað til?

Hvernig hefur önnin gengið hingað til?

Andri Ævarsson,
Stjórnmálafræði

Önnin er bara búin að ganga vel, búin að vera rosalega skemmtileg, búinn að kynnast mikið af fólki.

Gabriel Agueda,
Viðskiptafræði

Önnin er búin að ganga frekar vel hingað til miðað við hversu litla áherslu ég er búinn að setja á námið.

María Fönn Frostadóttir,
Grunnskólakennsla með áherslu á leiklist

Önnin er búin að ganga rosalega vel það er búið að vera ógeðslega gaman sérstaklega útaf Októberfest og það er búið að vera brjálað félagslíf, hrikalega skemmtilegt í kennó.

Ari Hallgrímsson,
Sagnfræði

Önnin hefur gengið hræðilega þar sem að ég hef tekið að mér of mörg verkefni í stjórnsýslunni sem er SHÍ og hef þar af leiðandi mætt í um það bil 15% þeirra tíma sem ég á að mæta í og skilað engum verkefnum hingað til. En annars er allt í góðu.