Heim Fréttir Jákvæð þróun í kvennakörfunni

Jákvæð þróun í kvennakörfunni

Sara Rún Hinriksdóttir, atvinnumaður í körfubolta og nýnemi við Háskóla Íslands, segir að mikil jákvæð þróun hafi orðið á íslenskum kvennakörfubolta síðan hún byrjaði feril sinn árið 2011 hjá Keflavík.

Körfubolti, nám og vinna

Sara er frekar upptekin þessa dagana þar sem að hún er bæði leikmaður í KR, í 100% starfi og í námi hér í HÍ. Hún er á augnablikinu að ljúka við þrjá forkröfuáfanga sem hana vantar frá sinni fyrri Ba og meistaragráðu til að hefja meistaranám í reikningshaldi og endurskoðun. Hún hefur núna verið atvinnumaður í um 15 ár og hefur spilað hér og erlendis en kom aftur heim árið 2024 eftir að hafa verið að spila erlendis yfir 10 ára skeið. Þegar hún kom aftur heim byrjaði hún að spila með æskuliðinu sínu Keflavík en vildi líka fá sér vinnu meðfram körfuboltanum. Hún fékk sér þá vinnu sem endurskoðandi og segir það spennandi að vinna þar sem hún hefur aldrei unnið „venjulega vinnu“. Hún hefur aldrei þurft þess þar sem körfuboltinn einn og sér hefur alltaf fleytt henni áfram án aðstoðar.

Jákvæð þróun

Þegar hún er spurð út í hvort það séu allir í íslensku deildinni sem þurfa að vinna meðfram körfunni svarar hún: „Ég þyrfti í rauninni ekkert að vinna. Mig langaði bara að undirbúa mig fyrir lífið eftir körfuna. Það eru ekkert endilega allir í þeirri stöðu, en það eru margir atvinnumenn.“ Hún bætir svo við að það hafi orðið mikil jákvæð þróun í þessum málum í íslenskri körfu. „Ég myndi segja að í körfubolta í heild sinni, aðallega karlamegin en það er eitthvað að bætast kvennamegin. Það eru að birtast fullt af tækifærum af því fólk er farið að horfa, bæði í Evrópu og hérna heima.”

Glæstur ferill

Sara hefur unnið mikið á sínum ferli en bara til að nefna það helsta þá er hún fimmföld körfuboltakona ársins, tvöfaldur Íslandsmeistari og bikarmeistari tvisvar. Hún byrjaði feril sinn hjá Keflavík 2011, aðeins 15 ára og komst strax í A-landsliðið 17 ára. Um leið og hún kláraði menntaskóla fór hún til Buffalo, New York í Canisius College. Þar keppti hún fyrir skólann í 4 ár á meðan hún fékk BA í alþjóðlegum viðskiptum. Eftir það fór hún til Englands í Loughborough University til að taka meistaranám í alþjóðlegum viðskiptum. Á meðan hún var þar keppti hún bæði fyrir skólaliðið og atvinnuliðið Leicester Riders. Eftir að hún kláraði meistaranámið ákvað hún að nýta sér það ekki strax heldur fór frekar um Evrópu að keppa. Hún byrjaði í Rúmeníu og spilaði þar með Konstanta, eftir það fór hún til Ítalíu og spilaði með Faenza og endaði á Spáni með AE Sedis. Árið 2024 ákvað hún svo að koma aftur til Íslands eftir 10 ár að heiman. Þá fór hún aftur til Keflavíkur, var þar í um tvö og hálft tímabil og skipti rétt fyrir sumarið til KR og spilaði sinn fyrsta deildarleik með KR 29. september.

Bríet Sif (til vinstri) og Davíð Breki (til hægri), systkini Söru

Körfuboltafjölskylda

Sara er ekki sú eina í fjölskyldunni sem er í körfubolta, litli bróðir og tvíburasystir hennar hafa bæði keppt. Litli bróðirinn Davíð Breki er á augnablikinu að keppa fyrir Keflavík og U16 landsliðið. Tvíburasystirin Bríet Sif byrjaði líka 2011 hjá Keflavík og hefur síðan einnig spilað fyrir Stjörnuna, Grindavík, Hauka, Njarðvík og landsliðið. Hún hætti þó atvinnukörfubolta 2026 eftir 15 ára feril.

Hvergi nærri hætt

Það virðist þó ekki sem Sara sé að fara að hætta á næstunni í ljósi þess að hún var að enda við að skrifa undir tveggja ára samning við KR. Þrátt fyrir að hafa unnið alls konar verðlaun hefur hún greinilega ekki fengið nóg. Henni líst vel á að ganga til liðs við félag eins og KR sem leggur svona sterka áherslu á að vinna titla.