Heim Fréttir Bráðabirgðainnsýn í óreiðuna

Bráðabirgðainnsýn í óreiðuna

Engin yfirsýn er yfir umfang eða afleiðingar upplýsingaóreiðu hér á landi samkvæmt fyrstu niðurstöðum NORDREN (The Nordic Disinformation Resilience Network) rannsóknarinnar en þær voru kynntar á málþinginu Blaðamennska á tímamótum í gær.

Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ og Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, standa fyrir rannsókninni hér á landi. Verkefnið er norrænt rannsóknarverkefni um samfélagsgetu til að takast á við upplýsingaóreiðu. Það er styrkt af NordForsk-sjóðnum og öll Norðurlöndin taka þátt í rannsókninni.

Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands

Vert er að taka fram að Hulda lagði sérstaka áherslu á að þetta væru bráðabirgðaniðurstöður á þessari rannsókn og að gagnasöfnun væri enn í gangi en lokaniðurstöður munu líklega liggja fyrir í febrúar á næsta ári. Hulda minnir líka á „að þetta eru rýnihópagögn og þetta er engin mæling á umfangi eða stóri sannleikurinn. Þetta gefur fyrst og fremst innsýn í það hvernig fólk sem starfar við þessi málefni eða þeim tengd sér málefnaupplýsingaóreiðu hér á landi.“

Íslenski hlutinn af rannsókninni byggir sem sagt á rýnihópum og þar sátu meðal annars fulltrúar utanríkisráðuneytisins, lögreglunnar, fjölmiðlanefndar, Blaðamannafélagsins og fjölmiðla.

Niðurstöður rýnihópsins

Stofnanaumgjörðin í tengslum við upplýsingaóreiðu á Íslandi er flókið kerfi og það koma að því allt að tíu stofnanir að einhverju leyti. Ríkislögreglustjóri meðhöndlar innlend lögbrot, fjölmiðlanefnd fer með eftirlit með miðlum og CERT-IS rannsakar netárásir. Hulda segir það í sjálfu sér ekki vera slæmt en „það hefur komið skýrt fram að enginn hefur yfirsýn yfir málaflokkinn og samráð er svona, hipsumhaps.“ Hún segir að í grunninn sé þörf á samhæfingu á þessum málaflokki milli þessara stofnana.

Svíar hafa tileinkað málefnið til stofnunarinnar um sálfræðilegar varnir, Finnland hefur í áratugi tengt þetta við þjóðaröryggi og viðbúnað. Noregur hefur þá frægu stofnun sem er rekin í samræði milli fjölmiðla sem gengur út á staðreyndaprófun (e. fact-checking), faktisk.no. Á meðan „Ísland hefur ja, mjög duglegt fólk sem þekkist persónulega. Það er sem sagt skortur á stofnanaskipulagi,“ segir Hulda.

Eitt stærsta viðfangsefni rýnihópsins var þjóðaratkvæðagreiðslan síðastliðinn 29. ágúst og umræðan í kringum hana en Hulda segir hana „í raun eins konar álagspróf á íslenskt upplýsingaumhverfi“.

Þegar rýnihópurinn var spurður fyrir rúmu ári hvaðan upplýsingaóreiða kæmi var svarið nánast einróma „hún kæmi að utan“. Rússland var þar oftast nefnt í tengslum við falsaðganga og skipulagðar aðgerðir sem miða að því að grafa undan samstöðu Norðurlandanna og NATO.

Raunin var önnur. Lögreglan og netöryggissveitin vöktuðu umræðuna í aðdragandanum og niðurstaðan var sú að það sem kom erlendis frá hafði ekki merkjanleg áhrif á umræðuna.

Mest áberandi óreiðan var þess í stað innlend. Snemma kom fram sú frásögn að verið væri að „plata þjóðina inn í sambandið“. Hulda nefndi hana sem dæmi um óreiðu sem á rætur í raunverulegum pólitískum ágreiningi. Einnig var aukin gagnrýni á fjölmiðla sem að því virtist, að mati þátttakenda, gagngert til þess að draga úr trausti fjölmiðla.

„Að styrkja fjölmiðla er öryggismál“

Hulda dregur þrenns konar lærdóm af verkefninu. Fyrst er að styrkja fjölmiðla, er að styrkja öryggismál. „Sterkir sjálfstæðir ritstýrðir miðlar eru ein af meginstoðum í vörnum lýðræðissamfélags, alveg eins og netöryggi og almannavarnir.“ Annar lærdómur er að við þurfum að tryggja áfram alþjóðlegt samstarf Íslands á þessu sviði og ekki hvað síst norrænt samstarf. „… fyrir okkur á Íslandi er það algjör nauðsyn að þurfa ekki að standa í þessu öllu upp á eigin spýtur. Enda er það auðvitað svo að stór hluti upplýsingaóreiðu virðir engin landamæri.“ Sá þriðji er að þörf sé á að byggja upp menningu þar sem fólk gerir greinarmun á skoðanaágreiningi og upplýsingaóreiðu.

„Seigla er það að taka við högginu án þess að traustið gefi sig og umræðan lamist,“ sagði Hulda Þórisdóttir.