Heim Spurning vikunnar Hvernig ferð þú í skólann?

Hvernig ferð þú í skólann?

Cynthia Anne Namugambe, Rafmagns- og tölvuverkfræði
Það tekur mig lengri tíma að keyra en að labba svo að ég labba bara.

Vigdís Elva Hermannsdóttir, Japanskt mál og menning
Ég vakna klukkan fimm og fer í strætó strax þegar hann kemur.

Hildur Agla Ottadóttir, Hugbúnaðarverkfræði
Síðan að Hlemmur lokaði er ég búin að nota allskonar leiðir til þess að koma mér í skólann. Stundum tek ég Strætó, stundum labba ég og stundum tek ég Hopp-hlaupahjól. 

Agnes Ísabella Gunnarsdóttir Félagsráðgjöf
Ég fer labbandi í skólann því ég bý á Stúdentagörðum.