Hjördís Freyja Kjartansdóttir, nemandi í stjórnmálafræði, segir erfitt hafa verið að fá stúdentakort hjá Háskóla Íslands.

Hjördís segir umsóknarferlið hafa gengið illa. „Ég sendi inn margar mismunandi myndir en fékk alltaf höfnun,“ segir Hjördís.
Ferlið við að sækja um stúdentakort
Nemendur sækja um stúdentakort í gegnum Uglu og fá þar leiðbeiningar um hvernig myndin á að vera. Hægt er að velja á milli korts með aðgangi að byggingum skólans frá 7:30 til 24 alla daga og korts án slíks aðgangs. Stúdentakortið veitir nemendum afslætti bæði utan og innan háskólans. Á vefsíðu Stúdentaráðs Háskóla Íslands má finna yfirlit yfir þá afslætti sem stúdentakortið veitir.
Ekki náðist í Þjónustuver Háskóla Íslands við vinnslu fréttarinnar.








