Heim Fréttir Engar pissuskálar í VR II

Engar pissuskálar í VR II

Á stúdentaráðs fundi er farið yfir mörg mismunandi mál. Eitt af þeim var aðstaða í VR II.  Kristrún Ágústsdóttir setti það mál fram en komst ekki á fund og fór því Andrea Edda Guðlaugsdóttir oddviti Vöku með málið.

Kristrún er oddviti verkfræði- og náttúruvísindasviðs Vöku og situr í stúdentaráði. Hún er nemandi í vélaverkfræði og eyðir því miklum tíma í VRII. Hún setti fram þá tillögu að bæta aðstöðuna þar sem hún er ófullnægjandi á einhvern hátt. 

Kristrún segir að síðasta skólavet­ur hafi pissuskálar á karlaklósettum verið fjarlægðar og að þær hafi ekki verið settar upp aftur. Hún segir að ekkert hafi verið gert í málinu og að klósettin séu því enn pissuskálalaus. Henni finnist það óásættanlegt að ekkert hafi verið gert í þessu máli. Hún telji að klósettaðstaða eigi að vera almennileg í byggingu sem sé notuð alla daga vikunnar og oft langt fram á kvöld.

Einnig hafi verið rætt um skort á virkum ljósastaurum fyrir utan bygginguna. Kristrún segir að margir nýti sér bygginguna eftir skólatíma til að læra, sérstaklega yfir vetrarmánuðina þegar dimmt sé úti stóran hluta dags. Hún telji að það gangi ekki að þegar fólk gangi út úr byggingunni sé eina lýsingin frá ljósum innan úr húsinu. Hún telji að nemendur eigi að geta séð í kringum sig þegar þeir yfirgefi bygginguna, líkt og við aðrar byggingar á svæðinu.

Hún segi að bæta þurfi úr þessu, líkt og gert hafi verið við aðrar byggingar. Henni finnist að ráðast eigi í þessi tvö verkefni sem fyrst til að tryggja fullnægjandi aðstöðu fyrir þá nemendur sem nýti sér bygginguna.

Á fundinum var kosið um þetta málefni og var það samþykkt af nemendum. Ekki er enn vitað hvenær verður farið í þessi verkefni en vonandi gerist þetta sem fyrst. Stúdentaráð nær vonandi að pressa á skólan um þetta. Kristrún segist vera mjög ánægð með þetta og vonar að þetta verði gert sem fyrst.