Nú þegar prófatíðin er að bresta á eiga margir það til að verða frekar kvíðnir. Prófin geta verið erfiður tími fyrir marga þar sem fólk þarf að fara yfir mikið efni og oft á stuttum tíma. Nemendur Háskólans finna fyrir pressu um að standa sig vel og getur það valdið miklum kvíða.
Blaðamaður Stúdentafrétta ræddi við nokkra nemendur um hvernig þeim finnst best að takast á við prófatíðina.

Söru finnst best að reyna glósa allt sem henni finnst vera mikilvægt í þeim áfanga sem prófið er í. Hún segist reyna að gera það jafnt og þétt yfir önnina til þess að minnka stressið þegar kemur að prófalestri. Sara segist ekki vera nógu dugleg að taka sér pásur á meðan hún lærir. Þegar hún var á fyrsta árinu sínu tók hún sér meira svona „pásur“ þar sem hún sat við skrifborðið í símanum þangað til hún fattaði að hún hefði verið að taka sér pásu. Hún segir að núna sé hún orðin betri í því og tekur sér þá almennilegar pásur þar sem hún fer frá tölvunni og gerir eitthvað annað í smá stund.
Sara segir að hún glími við mikinn prófkvíða, henni verður óglatt fyrir öll próf og á erfitt með að sofa í prófatíðinni. „Ástæðan afhverju mér gengur svona vel í náminu er vegna prófkvíðans.“ segir Sara.
Hún segist læra yfir sig fyrir hvert próf. Hún segir samt einnig að hún viti að það sé alls ekki heilbrigt. Söru finnst mikilvægt að leyfa sér í prófatíðinni, hún segist leyfa sér að kaupa hluti úti í búð sem hún myndi vanalega hugsa sig tvisvar um. Henni finnst gott að gera vel við sig til að vera spenntari að byrja læra. „Mér finnst best að læra ekki alltaf á sama stað.“ Henni finnst best að breyta um umhverfi til að leyfa huganum aðeins að anda.

Selma segir að hún passi mjög vel upp á svefninn sinn þegar hún er í prófunum. Hún leyfir sér að sofa lengur ef henni finnst þörf á því. „Það er ómögulegt að vera bæði illa sofin og kvíðin.“ Henni finnst líka mjög gott að hlusta á klassíska tónlist á meðan hún lærir, núna þar sem það eru jólapróf hlustar hún á klassíska jólatónlist. Selma passar alltaf að læra jafnt og þétt yfir önnina og getur þá passað að allt verði ekki of yfirþyrmandi þegar prófin eru að nálgast.
Hún reynir að einblína aðeins á eitt fag í einu og er mjög skipulögð í prófatörnum. Selmu finnst pásur henta sér illa, hún á erfitt með að koma sér aftur að efninu og hún verður kvíðnari ef hún tekur sér margar pásur. Þegar hún tekur sér samt pásur þá er það til þess að borða og oft til að spjalla við vini um eitthvað sem tengist náminu ekki neitt, til þess að dreifa huganum.
Selmu finnst mjög mikilvægt að passa upp á það að hún borði vegna þess að oft þegar hún verður kvíðin missir hún matarlistina. Hún reynir síðan að vera bara eins undirbúin og hún getur. „Ég sannfæri mig sjálfa um það að það séu nemendur sem eru verr undirbúnir en ég og munu ganga verr.“ Selma segir samt að þetta sé ekki heilbrigð hugsun en henni finnst þetta virka. Selma lærir lang oftast í VRII og segir að þar sé allir niðursokknir í bækur svo að næðið sé mjög gott.

Svanbjörn segir að honum finnist best að sjá fyrir sér næstu vikur og sjá þá fyrir sér það sem hann á eftir að gera áður en prófin byrja. Hann velur sér lærdómsaðferð sem hentar honum og gerir svo verkefnalista. „Mér finnst maður þurfa að leyfa sér að hafa gaman þrátt fyrir að vera í prófum.“ segir Svanbjörn. Hann fer þá og spjallar við vini eða fær sér eitthvað nals eða bara að gera eitthvað huggulegt. Hann segist læra oftast með sama fólkinu og er því búinn að venjast því. Honum finnst einnig eins og hann læri best á kvöldin og gefur sér því betri tíma eftir kvöldmat til þess að læra.
Til þess að berjast á móti prófkvíða reynir hann að hugsa um að allt muni reddast og að reyna að fresta hlutunum ekki of mikið. Hann segist vera tilbúinn að takast á við þessa prófatörn þar sem prófin hans í desember eru eiginlega eitt margskipt próf úr skemmtilegu efni.
Prófatíðin er stutt en krefjandi og allir eru með mismunandi viðhorf til hennar. Allir eru með mismunandi hefðir og venjur en við erum samt öll saman í þessu.







