Dularfullt málverk prýðir annars tómlega veggi kjallara Odda. Verkið er á vegg andspænis Garggeymslunni svokölluðu en hún er sveipuð álíka dulúð. Í vinstra horni málverksins er áritunin SÞ en ólíkt öðrum listaverkum sem prýða ganga skólans fylgja engar frekari upplýsingar um listamanninn eða uppruna verksins.
Við nánari eftirgrennslan á veraldarvefnum kemur upp bloggfærsla en þar er óskað eftir upplýsingum um listamann með sömu áritun SÞ. Fram kemur í færslunni að hann hafi áður reynt á mátt Facebook í von um að lesendur vissu deili á listamanninum en án árangurs.

„Er þetta Sveinn Þórarinsson?”
Blaðamaður Stúdentafrétta hafði samband við starfsmann Þjóðminjasafnsins, sem vildi ekki láta nafns síns getið, og honum brást ekki bogalistin. Þremur mínútum síðar var ráðgátan um hinn dularfulla SÞ mögulega leyst „Er þetta Sveinn Þórarinsson? Áritunin hans er SÞ og þetta er landslagsmynd, Listasafn Íslands á fullt af verkum eftir hann samkvæmt Sarpi.” Meðfylgjandi var vefslóð á síðu Sarps og þar blasti við málverk eftir Svein Þórarinsson, Úr Aðaldalshrauni, í sambærilegum stíl og verkið í kjallara Odda. Það sem meira er, áritunin er sú sama. Þegar rýnt er í myndir af verkum Sveins kemur í ljós að hann áritaði verk sín með misjöfnum hætti en einn þeirra er sláandi líkur þeim sem hér um ræðir. Gott dæmi um það er verkið Þingvallavatn.

Enn er þó mörgum spurningum ósvarað um dularfulla kjallaralistaverkið. Engar niðurstöður er að finna þegar leitað er að Sveini Þórarinssyni á vef Listasafns Háskóla Íslands. Þá er hann ekki í hópi þeirra listamanna sem getið er í safneign listasafnsins. Það lá því beinast við að slá á þráðinn hjá safnstjóra listasafns HÍ, Kristjáni Steingrími Jónssyni.
„Þetta er eitthvað sem umsjónarmenn hafa hengt upp fyrir meira en 8 árum síðan. Ég hef nú ekki spáð sérstaklega í þessu verki nýlega en það tilheyrir ekki Listasafni Háskólans. Þetta er trúlega eftir einhvern amatör listamann.”
Aðspurður hvort það gæti verið að um verk eftir Svein Þórarinsson væri að ræða sagðist Kristján telja að svo væri ekki en virtist um leið mun áhugasamari um málið „ertu búin að bera það saman við önnur verk eftir hann?” Blaðamaður játaði að sjálfur væri hann amatör í þessum efnum þ.e. að greina stílbragð þekktra listmálara, en að um landslagsverk væri að ræða sem svipar mjög til verka Sveins. Kristján tjáði blaðamanni að deildirnar hefðu í gegnum tíðina fengið hin ýmsu listaverk að gjöf og það kæmi fyrir að verkin væru sett í geymslu, mögulega væri það tilfellið hér. Hann vísaði á Karl Arnarson umsjónarmann sem gæti vitað meira um málið.
Karl kannaðist við málverkið en hafði svipaða sögu að segja og Kristján „þetta hefur væntanlega verið inn á einhverri skrifstofu og hún tæmd og þá hefur þessu verið hent þarna niður.“ Hann benti á að spyrjast fyrir á safnara hópum á Facebook, þar væru sérfræðingarnir. Þá vakti hann athygli blaðamanns á ýmsum öðrum listaverkum og styttum innan skólans sem tilheyra ekki Listasafni HÍ en eiga sér áhugaverða sögu.
Það sem átti að vera stutt og laggóð frétt um málverk á óvenjulegum stað er orðið að viðamikilli rannsókn sem er hvergi nærri lokið. Er um eftirlíkingu að ræða eða geymir kjallari Odda málverk eftir þekktan íslenskan listmálara?








