Heim Fréttir Jafnvægið sem er sjaldan fullkomið

Jafnvægið sem er sjaldan fullkomið

mynd af fartölvu

Að vera í háskólanámi er ekki sjálfgefið. Það voru skilaboð Silju Báru Ómarsdóttur, rektors Háskóla Íslands, á kynningadegi félagsvísindasviðs. Hún sagði það synd þegar nemendur fá ekki að njóta námsins vegna vinnu, og blaðamaður Stúdentafrétta fékk þau orð staðfest hjá henni.

En hvernig er raunveruleikanum farið? Stúdentafréttir ræddu við nemendur sem sinna vinnu meðfram námi og spurðu hvort jafnvægið milli skóla og starfs sé yfirhöfuð hægt að halda. Könnun EUROSTUDENT sem lögð var fyrir árið 2019 sýnir að langflestir íslenskir háskólanemar vinna með námi og um 72% segja tekjurnar nauðsynlegar til að geta stundað námið yfirhöfuð.

Reynsla nemenda af námi og vinnu

Anna Kristín Pálsdóttir, nemandi á öðru ári í félagsfræði, segist ekki stóla á tekjur sínar þar sem hún sé ekki að reka heimili. Hún sinnir hlutastarfi, setur námið alltaf í forgang og segist finna fyrir þægindum þess að vera fjárhagslega örugg.

Anna segir það skipta miklu máli að eiga gott samband við yfirmenn sína til að geta sinnt náminu sem best. Í fyrri störfum hafi verið minni skilningur á náminu, og hafi hún þá átt erfiðara með að leggja sig alla fram í því.

Lilja Rós Sveinsdóttir, nemandi á öðru ári í stjórnmálafræði, segist vera mjög heppin með núverandi vinnu. Hún sinnir hlutastarfi þar sem yfirmennirnir sýna henni mikinn skilning. Lilja nefnir þó að nýlega hafi hún verið sett á næturvaktir á virkum dögum og eigi þá til að sleppa morguntímum. Hún segist eiga erfitt með að ná sér eftir tvær eða fleiri næturvaktir í röð.

„Ég á erfitt með að ná mér aftur, eins og ég sé með hangover,“ segir Lilja eftir nokkrar næturvaktir.

Unnur Maren Þiðriksdóttir, einnig á öðru ári í stjórnmálafræði, segist oft eiga í erfiðleikum með að halda jafnvægi milli starfs síns og skóla þar sem hún sinnir fullri vinnu. Hún segist fremur tilbúin að fórna náminu en vinnunni, en hafi þó ekki fundið fyrir miklu höggi á einkunnir sínar síðustu annir. Hún þurfi þó að sjá til með þessa önn vegna aukins álags.

Unnur er einnig í nemendafélagi, sem leggur enn meiri áherslu á tíma hennar, og á hún þá enn minni tíma fyrir námið og félagslífið.

Könnunin sýnir að staða þeirra er ekki einstök. Samkvæmt EUROSTUDENT-könnuninni frá 2019 er hlutfall vinnandi háskólanema á Íslandi með því hæsta í Evrópu og hæst á Norðurlöndum. Um helmingur þeirra sem vinna sinnir meira en tíu klukkustundum á viku og þriðjungur meira en tuttugu. Á sama tíma kemur fram að 72% segja tekjurnar nauðsynlegar til að geta stundað námið yfirhöfuð.

Jafnvægið sem nemendurnir lýsa hér að ofan er því ekki undantekning heldur grundvallarskilyrði fyrir námi þeirra og misjafnt eftir því hversu vel vinnuveitandinn tekur tillit til skólagöngunnar.