Heim Fréttir „Við höfum nú þegar séð að svonalagað virkar ekki“

„Við höfum nú þegar séð að svonalagað virkar ekki“

Logi Einarsson, Háskólaráðherra (vinstri) og Robert James Chantrey, formaður alþjóðanefndar Röskvu (hægri).

Háskóli Íslands mun byrja að innheimta námsgjöld frá nemendum utan EES-svæðisins námsárið 2027–2028. Samkvæmt lagafrumvarpi háskólaráðherra, samþykkt af alþingi 19. júní, var opinberum háskólum veitt leyfi til að innheimta námsgjöld fyrir nemendur sem koma frá löndum utan EES-svæðisins. Námsgjöldin munu vera á bilinu 1.450.000 til 3.250.000 krónur með innskráningargjöldum inniföldum.

Margir hafa tjáð óánægju sína, meðal annars hafa Röskva, SHÍ, prófessorar og forstjóri Landspítalans lýst gagnrýni á lögin. Mótmæli voru haldin 18. nóvember á Austurvelli og alþjóðanefnd Röskvu, eins af skólafélögum Háskóla Íslands, hefur komið á undirskriftasöfnun til endurskoðunar á lögunum.

Robert James Chantrey, formaður alþjóðanefndar Röskvu, segir að í ljósi þess að um þrír fjórðu erlendra nema á Íslandi eru við nám í HÍ muni þetta hafa stórtæk áhrif á skólann. Hann spáir því að þetta muni virkilega fækka erlendum nemum í skólanum og leiða þannig til mögulegra niðurfellinga námsleiða og hafa vond áhrif á alþjóðlega rannsóknarsamvinnu skólans.

„Allir þessir þættir munu hafa áhrif á alþjóðlega stöðu íslenskra skóla. Ef skólarnir eru ekki í góðri stöðu alþjóðlega, hvernig eru þeir þá að fara að laða að sér þá bestu? Fólk mun ekki vilja borga námsgjöldin ef skólarnir eru ekki í góðri stöðu. Enginn mun vilja koma hingað,“ segir Robert.

Undanþágur

Tilkynntar hafa verið undanþágur þeirra sem borga.

  • Íbúar Grænlands, Færeyja og Sviss.
  • Fólk með ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi.
  • Fólk sem er í fjölskyldu með íslenskum ríkisborgara eða ríkisborgara EES.
  • Fólk sem er með dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða af mannúðarástæðum.
  • Fólk sem stundar nám við íslenskan háskóla í gegnum alþjóðlegt háskólasamstarf, samstarfsáætlun eða háskólanet.
  • Fólk sem stundar nám við íslenskan háskóla innan ramma alþjóðlegs þróunarsamstarfs Íslands.

Heilbrigðisstarfsmönnum var bætt við þennan lista í lagfæringu á lögunum 16. nóvember. Þetta var svar við gagnrýni frá meðal annars forstjóra Landspítalans um að þetta gæti komið hart niður á heilbrigðiskerfinu. Vöntun er á starfsfólki í heilbrigðiskerfinu og hún myndi aðeins aukast ef lögin væru ekki lagfærð og að heilbrigðiskerfið þarfnast erlends vinnuafls. Robert telur líkur á að Röskva hafi einnig átt hlut í breytingunum.

„Við höfðum vakið athygli á okkar áhyggjum [varðandi íslenskukennslu sem annað mál] og SHÍ gerði það sama. Mig langar að halda að vegna okkar gagnrýni hafi fólk fattað að reglurnar eru einfaldlega ekki rökréttar og stangast á við Íslenskustefnu ríkisins og ákveðið að bæta við þessari undanþágu. Það er þó synd að það var aðeins bætt þessari við. Ekki misskilja mig, þetta er framför, en það hefði verið gott að sjá meira gert. Það hefur verið staðfest að það verða engar fleiri undanþágur til námsgreinarinnar íslenska sem annað mál og það er verulega svekkjandi. Það er enn þá verið að hindra stóran hóp fólks í að læra tungumálið.“

Réttlæting á reglunum og styrkir

Stór þáttur í réttlætingu nýju laganna var að við erum eina Norðurlandið sem hefur ekki innleitt námsgjöld til nemenda utan EES-svæðisins og aukinn fjöldi erlendra nemenda seinustu ár. Hlutfall nemenda með ríkisfang utan EES-ríkjanna var 3,89% árið 2018 og 7,44% árið 2026. OECD, í sinni skýrslu árið 2023, mælti einnig með því að Ísland myndi innleiða námsgjöld á þennan hátt.

Það hefur þó ekki gengið vel hjá öllum hinum Norðurlöndunum að setja á námsgjöld. Til að mynda innleiddi Noregur álíka lög og Ísland hefur nú, árið 2023. Ári seinna fækkaði erlendum nemendum um 80% og núna þremur árum seinna er verið að breyta lögunum til að lækka innskráningargjöld í von um að fá fleiri erlenda nemendur aftur.

„Við höfum nú þegar séð að svonalagað virkar ekki. Þegar Noregur innleiddi álíka há gjöld hafði það vondar afleiðingar á menntastofnun þeirra og þeir eru núna að breyta þessu til að reyna að laga það. Ég held að íslenskir háskólar séu að fara að upplifa það sama og í Noregi og við munum bara þurfa að bíða og sjá hvort ráðuneytið verði viljugt til að taka reglugerðina til baka,“ segir Robert.

Tilkynnt hefur verið að 63 nemendur utan EES-ríkjanna munu fá styrk til náms. Áhersla verður lögð á að veita styrkina til námsgreina mikilvægra íslenskum kúltúr og samfélagi. Robert segir þetta þó vera sorglega lága tölu þegar borið er saman við þá um 1400 nemendur í HÍ sem koma frá löndum utan EES-svæðisins.

Meiri breytingar?

Þegar spurður út í hvort hann sé vonglaður um meiri breytingar á lögunum segist hann ekki vera viss.

„Frumvarpið hefur nú þegar farið í gegnum Alþingi, það er ekki mikið sem við getum gert núna. Í fyrra var tími til að koma í veg fyrir námsgjöldin. Þegar frumvarpið var að fara í gegnum Alþingi var þó talað um að undanþágur yrðu gefnar til námsgreina mikilvægra fyrir íslenskan kúltúr og samfélag. Þegar lögin fóru svo í gegn vorum við að búast við fleiri undanþágum en raunverulega voru. Þar sem það er erfitt að gera mikið í þessu eftir að þetta hefur farið í gegnum Alþingi myndi ég að minnsta kosti vilja sjá undanþágurnar sem hefur verið lofað verða innleiddar.“