Stúdentaráð Háskóla Íslands samþykkti í vikunni einróma tillögu um að beita sér fyrir bættum kjörum stúdenta í almenningssamgöngum með innleiðingu samgöngukorts, eða svokallaðs U-passa. Með innleiðingu U-passa myndu stúdentar fá tækifæri til þess að nýta sér almenningssamgöngur á hagstæðara verði en nú er raunin. Tillagan kveður á um að Stúdentaráð fundi með öllum viðeigandi aðilum og leiti lausna á því hvernig megi fjármagna U-passann. Samkvæmt tillögunni eru þeir Strætó, Háskóli Íslands, Viska stéttarfélag, rekstrarfélög deilibíla- og deilihlaupahjólaþjónusta auk sveitarfélaga á og í kringum höfuðborgarsvæðið.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Stúdentaráð kallar eftir U-passa en Stúdentafréttir hafa áður fjallað um málið í kjölfar yfirlýsingar Stúdentaráðs árið 2022. Sú yfirlýsing krafðist þess að ríkið myndi auka fjármagn til almenningssamgangna. Rebekka Karlsdóttir, þáverandi forseti Stúdentaráðs, sagði þá Stúdentaráð hafa talað fyrir U-passanum í mörg ár og því ljóst að málið er ekki nýtt af nálinni.
Stærsta vandamálið fjármögnun

Einar Jónsson, forseti umhverfis- og samgöngunefndar Stúdentaráðs og flutningsmaður tillögunnar, segir fjármögnun vera stærsta vandamálið við U-passann. Hann segir að Stúdentaráð hafi ekki tök á því að fjármagna verkefnið og því sé fyrsta skref að funda með viðeigandi aðilum og finna lausn á fjármögnun. Einar nefnir meðal annars að stéttarfélagið Viska hafi komið sterkt inn undanfarið í málefnum er varða afsláttarkjör fyrir stúdenta og einnig megi leita til sveitarfélaganna. Hann segist vongóður um að lausn finnist á fjármögnun U-passans.
Einar bendir á að starfsfólki Háskóla Íslands bjóðist sérkjör á árskorti í strætó og kosti það þau aðeins 38.350 kr, rúmum tuttugu þúsund krónum minna en árskort fyrir nemendur. Hann telur notkun almenningssamgangna vera algengari meðal fólks í Háskóla Íslands en almennt séð og U-passinn myndi nýtast nemendum vel. Hann segist sjálfur nota strætó daglega og myndi nota þetta ef það stæði til boða
Baráttan aldrei búin
Einar segir að þrátt fyrir langa baráttu fyrir U-passa haldi þau áfram að berjast fyrir betri kjörum stúdenta. Hann segir að barátta stúdenta eigi ekki að takmarkast við umræður um skrásetningargjöld og lánasjóði heldur þurfi hún einnig að ná til daglegs lífs eins og í tilfelli almenningssamgangna. „Ég vona náttúrulega að það finnist einhvers konar lausn á því og þetta verði að veruleika af því þetta er til staðar erlendis“, segir Einar um fjármögnun á U-passanum.








