Mikið líf og fjör var á Stúdentakjallaranum þann 18. september, veitingastað og bar innan Háskóla Íslands. Gestum var boðið upp á tónleika með hljómsveitinni Inspector Spacetime, sem hefur undanfarin ár verið á mikilli uppleið hér á landi. Stúdentakjallarinn hefur í gegnum árin staðið fyrir mörgum skemmtilegum og fjölbreyttum viðburðum og var þetta föstudagskvöld engin undantekning.
Klukkan níu byrjaði söngkonan Bryndís að hita upp og fór verulega að fjölga gestum, en einnig fór röðin á barinn að lengjast. Þegar klukkan sló tíu var stemningin í hámarki og steig hljómsveitin þá á svið en þó voru enn sumir að bíða í röð á barnum eftir einum köldum.

40 mínútna bið á barinn
Fyrsta árs landfræðineminn, Ingibjörg Ögn Úlfarsdóttir var ein fjölmargra nemenda Háskóla Íslands sem skellti sér á Stúdentakjallarann þetta föstudagskvöld enda uppáhalds hljómsveit hennar að spila og því voru hún og hennar vinir mætt tímanlega.
„Við vorum mætt snemma, klukkan sjö, af því við vorum alveg að búast við miklu fólki,“ segir Ingibjörg en þrátt fyrir að hafa mætt með góðum fyrirvara hafi þau samt þurft að bíða í röð hátt í 40 mínútur í seinni ferð sinni á barinn sem henni þótti nokkuð langur tími og dró það aðeins úr stemningunni í hópnum.
Þó svo að nokkur bið hafi verið á barinn segist Ingibjörg hafa skemmt sér konunglega ásamt vinum sínum þetta kvöld og dönsuðu þau og sungu fram að loka lagi hljómsveitarinnar.
„Þetta var geggjað kvöld og þrátt fyrir röðina þá var þetta mjög gaman og alveg þess virði!“ segir Ingibjörg að lokum.

Mikið að gera samkvæmt rekstrarstjóra Stúdentakjallarans
Ólafur Halldór Ólafsson er rekstrarstjóri Stúdentakjallarans og sér um dagskrá og viðburðahald. Ólafur hefur unnið við þess konar störf í mörg ár, meðal annars vann hann sem rekstrarstjóri á Kex Hostel og Bíó Paradís en einnig er hann með mastersgráðu í blaðamennsku.
Ólafur hefur unnið á Stúdentakjallaranum síðan í febrúar á þessu ári og leggur hann mikla áherslu á að skapa lifandi stemningu og efla viðburðahald innan Kjallarans.
„Við höfum verið með nokkra svona tónleika. Við vorum með Hipsumhaps í sumar og Sykur kom og spilaði í vor. Það var svipað að gera á þeim tónleikum líkt og þessum þannig að þegar eru svona stórir tónleikar þá getum við alltaf búist við því að á hápunktinum sé svolítið mikil röð á barinn,“ útskýrir Ólafur þegar spurt var út í biðtíma þeirra sem vildu kaupa sér bjór.
Yfir 400 manns höfðu meldað sig á viðburðinn á Facebook að sögn Ólafs og var því við að búast að það yrði óvenjulega mikið að gera. Ólafur segir að það sé verið að vinna í því að láta röðina ganga hraðar fyrir sig þegar kemur að slíkum stórviðburðum. Einnig minnist hann á að það hefði getað verið fleira starfsfólk á svæðinu og það sé eitthvað sem hugað verði betur að næst.
„Við ætlum að reyna að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að komast hjá því að það verði svona löng röð og reyna að flýta fyrir. Við erum að skoða þetta og ég er mjög bjartsýnn á að það gangi vel,“ segir Ólafur þegar spurt er út í næstkomandi viðburði Kjallarans.

Spennandi tímar framundan
Það eru spennandi tímar framundan á Stúdentakjallaranum og segir Ólafur að það sé ávallt eitthvað i gangi, nánast hverja helgi og lengri opnunartími einstaka sinnum gæti verið í vændum. Þeim langar að halda áfram að vera með skemmtilega og fjölbreytta viðburði, einnig er það líka markmið að bjóða gestum upp á nýjar hljómsveitir og tónlistarfólk. Að sögn Ólafs mun nú í lok október verða haldið Hrekkjavökupartý þar sem verður mikið stuð og stemning.








