Meðalmánaðarleiga einstaklingsíbúðar í stúdentagörðum er nú orðin 185 þúsund krónur eftir 5,25% hækkun allra leigusamninga 1. september. Allar íbúðir stúdentagarða eru reknar af Félagsstofnun stúdenta (FS) sem er óhagnaðardrifin stofnun á vegum HÍ sem er ætlað að „auka lífsgæði stúdenta“ samkvæmt vefsíðu Félagsstofnun Stúdenta. FS hefur hækkað alla leigusamninga um 11,7% síðan 2022.
Af hverju er verið að hækka leiguna?
Elín Ásbjarnardóttir Strandberg, þjónustu og samskiptastjóri Stúdentagarða, kennir auknum rekstrarkostnað um og segir að það séu þrjár meginástæður fyrir þessari hækkun. Fyrsta s´w hækkun fasteignalána, önnur breytt reglugerð við byggingu nýrra húsa og þriðja sé aukið magn og viðhald á öryggiskerfum.
„Eitt sem gleymist oft í umræðunni er að við erum ekki bara að passa upp á að stúdentarnir sem búa hjá okkur einmitt núna fái allt eins gott og hægt er, heldur viljum við líka byggja til frambúðar til að það sé hægt að halda áfram uppbyggingu og bæta við því sem þarf“, segir Elín.
Hversu stórar hafa hækkanirnar verið?
Hér er tafla sem sýnir upplýsingar um hækkun leigusamninga síðustu ár, staðfestar af FS. Þegar spurt var, gaf FS ekki upp upplýsingar um leiguhækkun fleiri ára.
| Hækkun leiguverðs | Ár |
| 5,30% | 2017 |
| 5,33% | 2018 |
| Engar upplýsingar | 2019-2022 |
| 2,00% | 2023 |
| 2,00% | 2024 |
| 2,00% | 2025 |
| 5,25% | 2026 |
„Almennt leiguverð hefur hækkað töluvert og við erum að gera allt sem við getum til að halda leigunni eins lágri og við mögulega getum. Það er nefnilega okkar hagur að stúdentum líði vel, gangi vel og þeir geti verið frjálsir innan þessa samfélags sem við erum búin að byggja upp hérna. Þetta hefur bara ekki dugað til að við séum að eiga almennilega fyrir okkar kostnaði og við þurfum því miður að bregðast við því með því að hækka leiguna“, segir Elín.
Styrkir til FS
Samkvæmt lögum FS má það afla sér fjár á þrjá vegu.
- Fá hlutfall af skrásetningargjaldi stúdenta í Háskóla Íslands.
- Fá framlag úr ríkissjóði sem Alþingi ákveður árlega.
- Fá gjafir.
FS fær í raun engan styrk frá ríkinu og samkvæmt ársreikningi hennar árið 2025 fékk hún engar gjafir, þannig hún þarf að styðja sig einungis við hlutfall af skrásetningargjaldi og innkomu frá sínum eigin rekstri. Skrásetningargjöldin nema aðeins 1,13% af innkomu hennar árið 2025. Auk þess fær hún sérkjör á lánum sínum hjá HMS og það er enginn tekjuskattur tekinn af henni.
Hvernig er þetta í nágrannalöndunum?
Þegar litið er til Danmerkur sjáum við margar óhagnaðardrifnar stofnanir sem reka stúdentagarða og fá meiri stuðning við sinn rekstur en stofnanir hér á landi. Þær fá vaxtalaus lán og beinan fjárhagslegan styrk frá ríkinu. Markmiðið er að halda leiguverði eins lágu og hægt er. En skilar það sér? Meðalleiguverð stúdentagarða á Íslandi er um 30-40% lægra en á almennum markaði samkvæmt FS. Í Danmörk eru stúdentagarðar um 50% ódýrari en þeirra almenni markaður, ef litið er til miðbæ Kaupmannahafnar.
Hafa ungmenni efni á þessu?
Tökum sem dæmi nema nýútskrifaðan úr menntaskóla sem vildi árið 2025 byrja nám við HÍ, búa í einstaklingsíbúð í stúdentagörðum og fjármagna allt sjálfur. Ef farið er eftir grein Stúdentafrétta um vinnuálag náms fæst að ef nemi er í fullu námi ver hann um 225 klst. á mánuði í nám. Ef farið er eftir skilgreiningu VR á fullri vinnu fæst að það jafngildir 130% vinnu. Meðalverð einstaklingsíbúðar árið 2025 var 175 þúsund krónur. Ef búist er við að sá hinn sami fái 3.500 krónur á klukkustund eftir skatt þyrfti neminn að vinna 50 klukkustundir (29% vinna) til að borga leiguna sína.
Samkvæmt þessu þyrfti nemi að verja tíma á við 159% vinnu í starf og nám. Hér er ekki tekið tillit til annars daglegs kostnaðar, þannig að hægt er að líta á 159% sem lágmark.
Gengur dæmið upp?
Það er ekki raunhæft að búast við að fólk vinni 159% vinnu. Þetta leiðir til þess að flestir reiði sig á lán, fá styrk frá foreldrum eða flytja ekki út og búa ennþá hjá þeim. Seinasti valkosturinn virðist hafa orðið vinsælli seinustu ár eins og sést á auknu hlutfalli eldri leigjenda. FS veitti niðurstöður frá sinni nýjustu skoðanakönnun þar sem 36% íbúa svöruðu. Þar kemur fram að 47,38% svarenda eru yfir 25 ára, sem Elín segir hærra hlutfall en í seinustu könnunum.
| Aldurshópur | Hlutfall íbúa |
| 19 ár og yngri | 3,55% |
| 20-25 ára | 49,08% |
| 26-35 ára | 33,90% |
| 36-45 ára | 10,64% |
| 46-55 ára | 2,70% |
| 56-65 ára | 0,00% |
| 66-75 ára | 0,00% |
| 76 ára og eldri | 0,14% |








