Stórsveit Stúdenta var stofnuð á dögunum og er hún fyrsta stórsveit Háskóla Íslands svo vitað sé. Valtýr Ferrell læknanemi stofnaði sveitina ásamt vinum sínum, tvíburabræðrunum Guðmundi og Kristni Þórarinssonum. Aðsókn í áheyrnarprufurnar var framar vonum að sögn Valtýs en umsækjendur voru hátt í 30 talsins. Til stendur að hefja æfingar eftir áramót og mega nemendur HÍ búast við að geta sótt tónleika hjá Stórsveit Stúdenta á komandi ári.

Valtýr Ferrell, 2. árs nemi í læknisfræði, er einn stofnenda Stórsveitar Stúdenta og forseti tilheyrandi nemendafélags. Hann spilar á bassabásúnu og á að baki 10 ára feril í stórsveitum Kópavogs og Menntaskóla í tónlist (MÍT). Hugmyndin með stofnun stórsveitarinnar er að skapa tónlistarlegan vettvang fyrir hljóðfæraleikara í háskóla.
„Þannig að þetta er góð leið fyrir hljóðfæraleikara að koma saman óháð námsbrautum“ segir Valtýr.
Uppsetning Stórsveitar Stúdenta er með hefðbundnu sniði og eru meðlimir hennar 21 talsins. Hefðbundin stórsveit er skipuð af fimm saxófónleikurum, fjórum trompetleikurum, fjórum básúnuleikurum ásamt rytmasveit sem leikur á trommur, píanó, gítar og bassa. Mestmegnis er spiluð jazz- og fönktónlist en einnig eru spilaðar útsetningar fyrir popptónlist.
Valtýr segir ríka hefð fyrir háskólastórsveitum í Evrópu og Bandaríkjunum og því ekki úr vegi fyrir hann sem einnig situr í Stúdentaráði að leggja fram stuðningstillögu þar.
„Með þessi rök að þetta er mikilvægt menningarlega og félagslega fyrir nemendur auk alþjóðlega vinkilsins, að sýna að þessa hefð skorti ekki.”
Tillagan hlaut mikinn stuðning frá Stúdentaráði að sögn Valtýs. Við tók pappírsvinna og stofnun nemendafélagsins STST. Í kjölfarið var sendur út póstur til nemenda HÍ þar sem óskað var eftir umsóknum og að lokum efnt til áheyrnarprufa. Valtýr vissi að það væri eftirspurn en segir aðsóknina í áheyrnarprufurnar hafa verið framar vonum.
„Við vissum að það væri einhver aðsókn, vissum af nokkrum bara út frá okkar samfélagi. Síðan voru margir skiptinemar og alþjóðlegir nemendur sem sóttu um. Það var gaman að sjá og kom í rauninni ekkert á óvart þar sem þessi starfsemi er svo víða í háskólum annars staðar.“

Valýr segist spenntur fyrir framhaldinu. Til standi að hefja æfingar eftir áramót og stefnan tekin á að halda fyrstu tónleikana í mars. Stórsveit Reykjavíkur stendur árlega fyrir stórsveitamaraþoni í Hörpu og Valtýr bindur vonir við að Stórsveit Stúdenta taki þátt í því og haldi um leið sína fyrstu tónleika.
„Við stefnum á að taka þátt í því, það er gott byrjunarverkefni held ég. Svo langar okkur að vera með byrjunartónleika eða upphafstónleika einhvers konar.“
Áhugasamir geta fylgst með framhaldinu hjá Stórsveit Stúdenta á instagramreikningi sveitarinnar.








