Heim Fréttir HÍ-sjóður skorinn niður í um fjórðung

HÍ-sjóður skorinn niður í um fjórðung

Sjóðurinn sem styrkir samfélagsvirkni verkefna Háskóla Íslands hefur verið skorinn niður við trog. Sum verkefni fengu ekki frekari styrki og önnur urðu fyrir umtalsverðum niðurskurði. Palestínuverkefnið er dæmi um það en styrkurinn sem það hafði fengið árin áður lækkaði verulega í ár.

Verkefnin sem HÍ styrkir til stuðnings samfélagsvirkni eru af ýmsum toga. Markmiðið er að auðga samfélagsumræðu, miðla fræðslu og efla samstarf. Dæmi eru um að slík verkefni framleiði heimildarmyndir, hlaðvörp og haldi viðburði, eins og ráðstefnur eða menningarlegar samkomur.

Palestínuverkefnið hefur fengið styrki frá árinu 2024. Það er rekið meðal annars af þeim Þóri Jónssyni Hraundal, lektor við mála- og menningardeild, og Nikkitu Hamar Patterson, doktorsnema við mála- og menningardeild.

Verkefnið varð til í kjölfar árásarinnar 7. október og innrásarinnar í Gaza sem fylgdi þar á eftir. Þórir gekk á fund með þáverandi rektor og spurði hvað skólinn hygðist ætla að gera og svarið gaf skýrt til kynna að það væri ekkert sem skólinn gæti í raun gert.

Í nóvember 2023 tóku þau Þórir og Nikkita sig saman ásamt öðru samstarfsfólki sínu í HÍ og héldu málþing. Þar var m.a. rætt hvers vegna fræðasamfélagið væri hrætt við að taka afstöðu og út frá þessu málþingi fæddist Palestínuverkefnið.

Strax í desember sama ár var byrjað að halda viðburði sem gengu út á samfélagsvirkni og í kjölfarið sóttu þau um fyrrnefndan háskólastyrk og fékk úthlutun upp á 1,4–1,5 millj. kr. á ári, bæði 2024 og 2025. Á því tímabili stóð verkefnið fyrir mörgum viðburðum á borð við innflutta fyrirlestra, tónleika, kvikmyndasýningar og málþing.

Þórir segir markmið verkefnisins vera tvíþætt. „Annars vegar snýst það auðvitað um að fjalla um málefnið sjálft en hins vegar líka um að skapa vettvang fyrir palestínska menningu og sögu.“

Stórfelldur niðurskurður

Fyrr á þessu ári sótti Palestínuverkefnið aftur um styrk til stuðnings samfélagsvirkni hjá háskólanum og átti von á svipuðu framlagi, en raunin var önnur. Í stað þess að fá 1,4–1,5 millj. kr. þá fengu þau úthlutað 500.000 kr. Þórir segir að eftir skýrslugerð sé ekki nema 300.000 fyrir allt árið sem sé í raun engin upphæð.

Síðastliðið haust var heilt háskólaþing tileinkað spurningunni um akademískt frelsi og ástandinu á Gaza. Að sögn Þóris var ein af niðurstöðum fundarins að nýta þær leiðir sem háskólinn hafði þegar tök á, sem var þá Palestínuverkefnið. Það kom þeim Þóri og Nikkitu á óvart að niðurskurðurinn hafi átt sér stað og skilja þau ekki hvers vegna.

Elvar Daði Eiríksson, forsvarsmaður sjóðsins, svaraði fyrirspurn:

„Sjóðurinn sem veitir styrkinn var skorinn niður í um fjórðung af því sem hann var árið á undan. Því voru styrkfjárhæðir lækkaðar auk þess sem úthlutunarhlutfall lækkaði.“

Nákvæmari skýringar á breytingum fjármagns og úthlutana hafa ekki borist frá háskólanum en á árinu 2025 var úthlutað rúmlega 40 milljónum króna og ef það var skorið niður í um fjórðung má ætla að u.þ.b. 10 millj. kr. séu til úthlutunar í ár.

Þórir og Nikkita ætla ekki að láta þetta á sig fá og halda ótrauð áfram. Nikkita segir verkefnið aldrei hugsað sem tímabundið viðbragð við ástandinu, heldur sem langtímaskuldbindingu. „Þetta er ekki búið þegar vopnahlé kemur á. Þetta er ekki búið þegar þjóðarmorð er sagt vera yfirstaðið. Við skuldum þeim þetta sem skuldbindingu til frambúðar, okkar og komandi kynslóðir bera ábyrgðina.“

Hægt er að fylgjast með Palestínuverkefninu og komandi viðburðum á Facebook-síðu verkefnisins sem og í viðburðartilkynningum frá Háskóla Íslands. Þeir sem vilja leggja þeim lið eða sækja sér stuðning geta einnig haft samband við verkefnið á Facebook eða beint við Þóri og Nikkitu.