„Það væri náttúrulega geðveikt gaman að spila á Stúdentakjallaranum,“ segir Leela Lynn, sem er í hljómsveitinni 5k, þegar spurt var hvert hljómsveitin stefndi.
Gelluhljómsveitin 5K er tiltölulega ný hljómsveit. Í henni eru sex stelpur sem allar spila á hljóðfæri og syngja. Þær eru Anna Birna, Jarún Júlía, Freydís Klara, Guðrún Lilja, Þóra Fanney og Leela Lynn. Anna og Freydís eru þó ekki einungis rísandi poppstjörnur heldur eru þær einnig háskólanemar í Háskóla Íslands.
Blaðamaður hjá Stúdentafréttum hitti stelpurnar á æfingu fyrir hljómsveitina og fékk að ræða við þær um líf þeirra sem tónlistarmenn í hljómsveit og háskólanemar.
Glíma við að halda tveim boltum á lofti
„Mér finnst mjög gott að geta komið hingað og alveg slökkt á hausnum,“ segir Anna um að geta notað tónlistina sem útrás þegar hún þarf oft að hugsa mikið vegna námsins.
Anna er á öðru ári í læknisnámi og segir frá því hvernig það er að halda tveimur boltum á lofti. Hún segir að stundum sé erfitt að einbeita sér en tónlistin sé góð hvíld frá náminu.
Freydís er hins vegar á fyrsta ári í hjúkrunarfræði og hefur enn ekki upplifað kvíðann við að fara í gegnum próftímabil og vera virk í hljómsveitinni. Freydís semur texta fyrir hljómsveitina og vinnur við þá heima samhliða heimanámi og segir að hún hafi oft upplifað sig eftir á í náminu en hafi hingað til alltaf náð að vinna það upp.
Leela Lynn er nemandi í kvikmyndadeild í Listaháskóla Íslands og gerði tónlistarmyndband við lagið Heartbeat. Hún stefnir á að geta nýtt námið sitt meira þegar kemur að hljómsveitinni.
„Þetta er svona space þar sem ég set enga pressu á mig og ég er bara eitthvað að skemmta mér,“ segir Leela, en hún finnur fyrir pressu þegar kemur að kvikmyndagerð í skólanum og segist geta miklu frekar slakað á og notið þess að gera tónlistarmyndbönd.

Uppruni hljómsveitarinnar
5K hefur verið rísandi síðasta árið, eftir að nýja lagið þeirra Heartbeat kom út í maí á þessu ári. Stelpurnar hafa tekið þátt í ýmsum þekktum hátíðum, meðal annars tónlistarhátíðinni Bergmáli, og sungu þær á síðustu Menningarnótt. Stelpurnar segja að upplifunin að hafa sungið á litla sviðinu á Bergmáli hafi staðfest fyrir þeim að þær séu í raun listamenn.
Þær kynnast í tónlistarskólanum Miðstöðin, þar sem kennarinn Ólafur Elíasson setti þær saman í hljómsveit. Hljómsveitin var stofnuð árið 2019 og hét þá 5K á kortið, en stelpurnar segja að hún hafi lengi verið frekar óstöðug en núna sé hún orðin sterk, og þær hafi stytt nafnið í 5K.
Stelpurnar stefna langt í framtíðinni. „Mig langar að þau hlusti á tónlistina okkar og líði eins og okkur líður þegar við hlustum á til dæmis Celine Dion,“ segir Freydís. Þær segjast vilja ferðast, meðal annars til Danmerkur og Bretlands, og spila á fleiri stöðum eins og auðvitað á Stúdentakjallaranum.








